19. júní

Ataaseq assigiiaat ilaat

19. júní - 19.06.1991, Qupperneq 37

19. júní - 19.06.1991, Qupperneq 37
leysa, bara ef fólk vilji breyta hugsun- arhætti sínum og samþykkja að kynin séu fædd jafnrétthá. Það sé feðra jafnt og mæðra að hugsa um börnin og þegar það sé viðurkennt leysist málin af sjálfu sér. Fjölmargir femínistar taka undir með þeim sem telja að konur séu ekki eins metnaðargjarnar og karlar en nefna um leið að ástæðurnar séu ekki innbyggðar í „kveneðlið'1 heldur séu þær fyrst og fremst sögulegar. Alda- löng kúgun hafi valdið því að konur haldi aftur af sér og sættist á að hæfi- leikar sínir séu annað hvort minni en karla eða þá minna virði. Hér sé einn- ig þörf á breyttum hugsunarhætti, bæði meðal kvenna og karla. Og þá er meðal annars einnig átt við að hugsunarhátturinn eigi ekki að breyt- ast í þá átt að konur eigi að sætta sig við að berjast fyrir frama á forsendum karlmanna; þ.e. gerast einhvers konar „karlkonur“, samanber það orðspor sem fer af fyrrum forsætisráðherra Bretlands. Hugtakið „forsendur kvenna" felur m.a. í sér að sá heimur yrði betri þar sem frami fólks réðist af fleiri verð- leikum þess en hæfileikum í bardaga- tækni og ómældri vinnusemi. I slíkum heimi fengi fjölskyldulíf að dafna. Foreldrar, ekki síður en börn, nytu góðs af og skiluðu þeirri lífsgleði aftur til baka í atvinnulífið með vöxtum. 1 þessu „draumaríki“ teldist það ekki fötlun á vinnumarkaði að eiga börn. Hve lengi skal bíða? Iaugum þeirra sem hafa beðið lengi eftir að hugsunarhátturinn breyt- ist er þörf á nýjum aðferðum. Tregðulögmálið er ráðandi cins og dæmin sanna. Þrátt fyrir mikla um- ræðu hefur fátt eitt komist í fram- kvæmd. Orðin ein virðast ekki gefa þann árangur sem vænst var. Með- mælendur tímabundins forgangs telja að nú sé kominn tími til að láta verk- lr> tala; konur muni aldrei geta sannað getu sína og þannig breytt hugsunar- hættinum nema fá tækifæri til þess. Ein hclstu rökin fyrir tímabundnum hngangi kvenna eru því þau að í framkvæmd geti hann leitt til þess að hugsunarháttur samfélagsins gagn- vart getu og hæfileikum kvenna breyt- !st. Önnur og raunar enn mikilvægari eru þau að allir eigi jafnan rétt á að újóta sömu tækifæra til að nýta hæfi- leika sína til fulls. Til þess að svo megi verða í framtíðinni sé nauðsyn- legt að beita mismunun gagnvart körlum um tíma þar til eitthvert jafn- vægi næst. Jafnframt eigi samfélagið rétt á að njóta hæfileika allra þegn- anna. Heildin tapi ef ákveðinn hluti fólksins er útilokaður frá því að þjóna henni. Sömu rök gilda að sjálfsögðu þegar viss störf, til dæmis grunnskóla- kennsla, barnagæsla og hjúkrun, eru einokuð af konum. Sá munur er þó á dæmigerðum kvenna- og karlastétt- um að kvennastörfín eru undantekn- ingarlítið lægra launuð en karlastörf. Það er því skoðun margra að lág laun séu helsta ástæðan fyrir því að karlar „leyfi“ konum að vera í meirihluta í hefðbundu kvennastörfunum. Sú skoðun hefur jafnvel heyrst að þegar hlutfall kvenna í karlastarfi sé farið að nálgast tiltekið hlutfall þá lækki launin. Um þetta skal ekki dæmt hér, enda ósannað mál. Það virðist þó augljóst að stjórn- kerfið og atvinnulífið hljóta að gjalda þess ef viðhorf annars kynsins ráða þar ríkjum. Hvort tveggja hefur mikil áhrif á líf bæði karla og kvenna. Ef vilji samfélagsins er á annað borð sá að öllum sé gert jafnhátt undir höfði hlýtur að vera nauðsynlegt að viðhorf beggja kynja eigi fulltrúa sem víðast, hvort sem það er í valdastöðum eða annars staðar. Réttlæti eða ranglæti? Hér er gengið út frá því sem vísu að munur sé á viðhorfum karla og kvenna í heildina litið. Því skal ekki mótmælt að vissulega eiga kynin oft samleið þegar ákvarðanir eru teknar sem eiga að vera til góðs fyrir heildina. En óhjákvæmilega koma upp kringumstæður þar sem grundvallarmunur er á afstöðu kynj- anna eins og skoðanakannanir um ýmis mál hafa sýnt fram á. Hér verður ekki nánar skilgreint í hverju þessi rnunur felst enda væru deilur um það líklega efni í heila bók. En hvort sem ástæður þessa munar eru bundnar eða eiga einfaldlega ræt- ur í mismunandi félagsmótun þá verð- ur því ekki neitað að hann er til stað- ar. Sem betur fer að margra áliti. Andmælendur tímabundins for- gangs leggja oft fram þau rök að óréttlæti felist í því að neita karli um starf af þeirri ástæðu einni að hann er karl. Hver og einn eigi meðfæddan rétt til að vera metinn sem cinstakling- ur en ekki sem hluti af tilteknum hópi. Það séu verðleikar hans sem einstakl- ings sem máli skipti. I fyrsta lagi er því til að svara að karlinum yrði ekki neitað um starfið á þeirri forsendu einni að hann er karl, eins og ljóst er af framansögðu. í öðru lagi mætti spyrja hvaðan þessi meðfæddi réttur kæmi. Er það ekki réttur atvinnurek- andans að ráða til sín fólk að eigin geðþótta? Það eina sem getur haft áhrif á þetta vald hans er lagasetning stjórnvalda eða umboðsaðila þeirra. Til dæmis um tímabundinn forgang kvenna til starfa. Ef rétturinn til að vera metinn sem einstaklingur er á annað borð til stað- ar þá hefur hann a.m.k. ekki verið viðurkenndur í verki ennþá. Eða hvers vegna hefur hæfum konum ver- ið hafnað urn störf jafn oft og skýrsl- ur og dómar Jafnréttisráðs íslands sanna? Jú, vegna þess að þær tilheyra tilteknum hópi. Hópi sem ekki hefur verið gefið tækifæri til að sanna gildi sitt. Hér gætu andmælendur gripið and- ann á lofti og spurt í hvössum tóni: „Með þessu svari er rétturinn til að vera metinn sem einstaklingur viður- kenndur. Svarið felur í sér mótsögn. Og felst eitthvert réttlæti í því að beita mismunun gegn mismunun?“ Þetta er líklega sú spurning sem hvað erfið- ast er að svara. Réttlætið er erfitt að skilgreina. Ohjákvæmilegt virðist að beita ranglæti til að ná fram réttlæti. Reglan um réttinn til að vera metinn að verðleikum sem einstaklingur verður að yíkja fyrir reglunni um jafn- rétti kynjanna eigi markmiðið að nást. En vera má að við getum gert grein- armun á réttlætanlegri mismunun og óréttlætanlegri. Mismunun sú gagn- vart karlmönnum sem felst í reglum um tímabundinn forgang kvenna til starfa er að mínu mati réttlætanleg vegna þess að hún er til góðs fyrir bæði kynin þegar til lengri tíma er lit- ið. Hún leiðir til réttlátara samfélags þar sem fleiri fá að njóta verðleika sinna til fulls. Mismunun sú sem enn viðgengst, þ.e. að hafna konum í störf vegna þess að þær eru konur, felur hins vegar í sér æ óréttlátara samfélag þar sem annað kynið drottnar yfir möguleikum liins. Áhersla er á það lögð að hér verður ekki beitt söguleg- um rökum um kúgun kvenna, einfald- lega vegna þess að þess gerist engin þörf. Misréttið blasir við, hvert sem litið er. Karlkyns andmælandi minn gæti sagt sem svo: „Því skyldi cinstakling- urinn ég gjalda þess misréttis sem kyn mitt á sök á? Ég er hlynntur jafnrétti Framhald á bls. 68. 37
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84

x

19. júní

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.