19. júní - 19.06.1991, Blaðsíða 67
ANNIRÁ
SKRIFSTOFU
Texti: Ellen Ingvadóttir
„Það er nokkuð algengt að konur á
öllum aldri hringi í skrifstofuna til að
grennslast fyrir um starfsemi Kvenrétt-
indafélags íslands,“ segir fram-
kvæmdastjóri félagsins, Herdís Hall, en
bætir við að fleiri konur mættu hringja
eða heimsækja aðsetur félagsins.
Skrifstofa KRFÍ er á efstu hæð
Hallveigarstaða, Túngötu 14. Húsa-
kynnin eru glæsileg, en ekkert jafnast
á við útsýnið til norðurs, þar sem
Esjan blasir við, og til suðausturs þar
sem glampar á íjallahringinn á björt-
um dögum.
Herdís hefur verið framkvæmda-
stjóri KRFÍ um þriggja ára skeið og
segir í viðtali við 19. júní að þessi ár
hafi verið sér mjög lærdómsrík og
ánægjuleg. Aðspurð um hlutverk
framkvæmdastjóra félagsins segir hún
að það sé að sjá um daglegan rekstur
skrifstofunnar. „Starfið er að mörgu
leyti fjölbreytilegt og dæmi um það
er að halda utan um félagatalið, und-
irbúa stjórnarfundi og aðra fundi á
vegum KRFÍ, sjá um fjármálin og
reyndar að framkvæma allt það er
stjórnin ákveður. Einnig tökum við á
móti framlögum vegna Menningar-
°g minningarsjóðs kvenna sem var
stofnaður á sínum tíma til að styrkja
konur til mennta.“
Það kemur fram í máli Herdísar að
'iokkuð sé um að konur hringi á skrif-
stofuna til að leita ráðgjafar uni rétt
sinn eða grennslast fyrir um starfssemi
iélagsins. „Að nn'nu mati er aldrei nóg
af símtölum eða heimsóknum til okk-
ar>“ segir hún. „Við veitum að vísu
ekki lagalega ráðgjöf en alls konar
Hcrdís tlall framkvæmdastjóri KRFl
upplýsingar hins vegar, til dæmis um
fundi félagsins, stefnumál þess o.fl.“
- Hvernig er upplýsingum um starfs-
semi KRFÍ komið til félaga og ann-
arra er áhuga hafa á því?
„Það má ef til vill segja sem svo að
aldrei sé nóg af upplýsingum komið
á framfæri. Við gefum út fréttabréf
reglulega og ritstjóri þess er Inga Jóna
Þórðardóttir sem á sæti í stjórn
KRFÍ. Hlutverk mitt varðandi frétta-
bréfið er hin framkvæmdalega hlið
þess. Einu sinni á ári kemur út rit
KRFÍ, 19. júní, og í því er miðlað
upplýsingum um kvenréttinda- og
jafnréttismál almennt. Ég sé einnig
um framkvæmdalega hlið þess blaðs,“
segir Herdís.
Kvenréttindafélag íslands er gamalt
félag með hugsjónir og stefnumál sem
eru sígild. Herdís segir að lokum að
hún hvetji fólk til að hringja eða heim-
sækja skrifstofuna sem er opin fyrir
hádegi alla virka daga. „Við erum
ætíð reiðubúnar að svara fyrirspurn-
um um starfsemi félagsins og það eru
allir velkomnir."
67