19. júní - 19.06.1991, Blaðsíða 25
Guðrún Agnarsdottir
kvennaráðstefna á íslandi
Áætlað er að ráðstefnan verði í allt
að 5 daga á tímabilinu 16. til 21. júní.
Ráðstefnugestum gefst því kostur á
að sjá hátíðahöld á 17. júní, 19. júní
verður sérstaklega minnst á ráðstefn-
unni og 21. júní er lengstur sólargang-
ur.
Mikil áhersla verður lögð á að draga
athygli fjölmiðla, ekki síst erlendra,
að kvennaráðstefnunni. Það er í raun
uiikilvægur og ómissandi liður í því
að gera ráðstefnuna alþjóðlega og
jafnframt að gera hana að þeim hvata
sem kveikt gæti von og eld í hjörtum
kvenna út um allan heim. í ráði er
að útbúa bæði bók og myndbönd um
raðstefnuna sem hægt væri að nota
til fræðslu.
Heiti ráðstefnunnar á ensku er :
Global Summit of Women -
Visions for the Future
sem þýða má: Heimsþing kvenna um
framtiðarsýn.
Markmið ráðstefnunnar
arkmið ráðstefnunnar er að
ræða nýja sýn, sýn kvenna í
ðreyttum heimi og þær áherslur sem
konur vilja leggja við nauðsynlega
appstokkun og endurbyggingu þjóð-
•Hagsins. Þau vandamál sem mann-
kynið stendur frammi fyrir kreljast
aýrra lausna, nýrrar nálgunar. Víða
um heim hafa konur lagt fram nýjar,
jakvæðar hugmyndir sem varða alla
leimsbyggðina. Konur hafa einnig
r,°rið með sér farsæla starfshætti og
samskiptahefðir inn á fjölmörg svið
atvinnulífsins.
Ætlunin er að stefna saman þessum
konum til að stilla saman strengi sína
og leita lausna sem úrelt valdakerfi
og stjórnunaraðferðir hafa ekki fund-
ið.
Markmið ráðstefnunnar er einnig
að mynda og treysta tengslanet meðal
baráttukvenna víðsvegar um heiminn
sem mun nýtast þeim eftir að ráð-
stefnunni lýkur. Mikilvægt er að
tryggja þátttöku kvenna víðsvegar að
úr heiminum og verður haldin undir-
búningsfundur í júlí n.k., í Bandaríkj-
unum, í því skyni. Þangað verða sér-
staklega boðaðir fulltrúar kvenna frá
þróunarlöndunum og Austur-Evrópu
til að gefa þeim kost á að leggja sitt
til málanna við mótun ráðstefnunnar.
Undirbúningsnefnd hefur starfað
hér á landi á síðan 1990 en í henni
eiga sæti fulltrúar kvenna frá Alþýðu-
bandalagi, Alþýðuflokki, Borgara-
flokki, Framsóknarflokki, Kvenna-
lista, Sjálfstæðisflokki og Kvenrétt-
indafélagi íslands. Framkvæmdastjóri
er Guðrún Agnarsdóttir. Undirbún-
ingsnefndin fékk góðfúslega afnot af
skrifstofuhúsnæði Kvenréttindafé-
lagsins um tíma en aðsetur hennar
verður í Hlaðvarpanum, Vesturgötu
3b, Reykjavík.
Ráðgert hafði verið að halda ráð-
stefnuna í júní 1991 en það var sam-
dóma álit íslensku og bandarísku
undirbúningsnefndanna að þá gæfist
of naumur tími til undirbúnings svo
viðamikillar ráðstefnu. Var því
ákveðið að fresta henni um eitt ár.
Ráðstefnan hefur þegar hlotið styrk
úr bandarískum sjóði auk þess sem
íslensk stjórnvöld hafa góðfúslega
tryggt fé til byrjunarframkvæmda.
Það kemur hins vegar fyrst og fremst
í hlut bandarískra kvenna að sinna •
fjáröflun vegna ráðstefnunnar og er
hún í fullum gangi en velgengni fjár-
öflunar ræður úrslitum um þetta viða-
mikla verkefni.
Dagskrá ráðstefnunnar er enn í
mótun og verður nánar kynnt síðar.
í tengslum við þessa ráðstefnu hafa
íslenskar konur úr ólíkum stjórnmála-
flokkum fundið samvinnugrundvöll
eins og svo oft áður.
Því fleiri leiðir sem við getum opnað
á milli okkar kvenna, því stærri sem
okkar sameiginlegi grundvöllur verð-
ur, þeim mun líklegra er að við getum
styrkt hver aðra í baráttu sem á sér
sameiginleg markmið. Þá er einnig
líklegra að við fáum einhverju áorkað.
íslenskar konur sýna verðugt frum-
kvæði með því að bjóða til alþjóða-
ráðstefnu kvenna, leiðtogafundar að
hætti kvenna, á íslandi. Við vitum að
smáþjóð eins og íslendingar gegnir
mikilvægu hlutverki í samfélagi þjóð-
anna og hefur ýmislegt fram að færa
sem aðrir geta ekki látið í té. Á ís-
landi hafa konur farið ótroðnar slóð-
ir í leit sinni að auknum réttindum
og ríkari aðild að mótun samfélagsins
og þær hafa sýnt órofa samstöðu um
verkefni sem þær hafa tekið að sér.
Þeirri reynslu getum við miðlað um
leið og við njótum góðs af því sem
aðrar konur hafa fram að færa.
25