19. júní


19. júní - 19.06.1991, Blaðsíða 56

19. júní - 19.06.1991, Blaðsíða 56
Tryggingastofnun, eins og núna, og fólk ætti rétt á 90% af launum sínum og þá heildarlaunum, ekki bara dag- vinnulaunum, upp að ákveðnu þaki sem væri þrefaldar atvinnuleysis- bætur, nú um 130 þúsund krónur. Það er líka ákveðið gólf í þessu og það fer enginn niður úr fæðingar- styrknum, sem í dag er 23.000 krón- ur. Fæðingarstyrkinn fá allar konur. Miðað við þetta nýja kerfi yrðu alltaf einhver dæmi þess að konur, sem nú fá um 55.000 krónur út úr fæðingaror- lofinu, fengju eitthvað minna en þær fengju 90% af laununum sínum. Eng- in skerðing kæmi á laun sem eru lægri en 23.000 krónur og því er engin breyting gagnvart konum sem ekki vinna úti eða konum sem vinna minna en 512 stundir á ári. Núna, þegar fæðingarorlofið er ekki tekjutengt, skiptir ekki máli hvort kona er með 50.000 krónur á mánuði, 150.000 eða 200.000 þúsund; allar konur sem vinna hálft starf eða meira fá það sama greitt frá Tryggingastofnun, þ.e.a.s. um 55.000 krónur.” -En er atvinnurekandnnum heimilt að greiða konum viðbót samkvæmt frumvarpinu? Nei, þær eiga ekki að fá neinar við- bótargreiðslur og það á að fylgjast með því að svo sé. Samtök opinberra starfsmanna eru aðallega á móti þess- um breytingum, þar sem gert er ráð fyrir að lögin nái einnig til þeirra stétta. En ljóst er að ekki verður fall- ist á svona kerfi nema það nái til allra stétta. Við viljum ekki horfa upp á þetta misrétti í þjóðfélaginu áfram, annað hvort höfum við samhæft kerfi fyrir alla eða við bara sleppum þessu. Það er í raun alveg fáránlegt hvernig þetta hefur verið framkvæmt; að það fari eftir því í hvaða stétt þú ert hvað þú færð mikið í fæðingarorlof!” Hætt er við að fieiri verði á móti breytingunum því að framkvæmda- stjóri Blaðamannafélags íslands, Fríða Björnsdóttir, sagði í samtali við 19. júní að hún væri viss um að búast mætti við miklum mótbárum við þess- um breytingum frá sínum félags- mönnum. Arið 1976 hefði Blaða- mannafélagið samið í kjarasamning- um um að blaðakonur fengju 3 mán- aða fæðingarorlof á fullum launum, sem hefði lengst í 4 mánuði um leið og orlofið lengdist hjá konum í öðrum stéttarfélögum. Fríða sagði að margar félagskonur væru með hærri laun en það hæsta, sem gert er ráð fyrir að konur fengju greitt samkvæmt breyt- ingartillögunum, og hún taldi fráleitt að félagsmenn samþykktu að missa réttindi sem þeir væru búnir að berj- ast fyrir að fá inn í sína kjarasamn- inga. -Hvað með lengingu fæðingarorlofs? „Ekki er fjallað um lengingu í þessu frumvarpi. Lagt hefur verið fram á þingi frumvarp um lengingu í 10 mán- uði þannig að fæðingarorlof sé greitt í níu mánuði auk eins mánaðar fyrir fæðingu. Þarna er gert ráð fyrir sama misréttinu áfram en þörf er á jöfnun, leiðréttingu á kerfinu eins og það er í dag, áður en farið er að tala um leng- ingu. Við getum líka leitt að því hug- ann að ef konur verða vegna barns- eignar í burtu frá vinnumarkaði í 10 mánuði þá verði þær í auknum mæli meðhöndlaðar sem eins konar auka- vinnukraftur, sem gerir alla baráttu fyrir jöfnum launum og baráttu fyrir auknum réttindum kvenna á vinnu- markaði mjög erfiða. Því það er ekki bæði hægt að hamra á því að konur eigi rétt á stöðuhækkunum, sömu launum fyrir sömu vinnu og það eigi að taka sama tillit til þeirra á vinnu- markaði og karla - og því að þær geti farið af vinnumarkaði í 10 mán- uði - í tæpt ár - og haldið öllum sömu réttindum. En auðvitað má ekki gleyma því að kona hefur val um að taka fæðingarorlof, hún þarf ekki að taka fæðingarorlof frekar en hún vill.” Fæðingarorlof stytt um 12 vikur etta látum við nægja um fæðing- arorlof að sinni, en til fróðleiks og til að íslenskar konur geti borið stöðu sína í þessum málum saman við nágrannaþjóðir, þá endursegjum við stuttlega frétt sem birtist nýlega í dag- blaði, um stöðu þessara mála í Fær- eyjum. Þar var greint frá því að ný stjórn stærsta útfiutningsfyrirtækis Færeyja hefði stytt fæðingarorlof' .starfskvenna sinna um 12 vikur. Kon- urnar þar eiga nú aðeins rétt á átta vikna fæðingarorlofi á hálfum laun- um, auk þess sem stjórn fyrirtækisins hefur hótað að reka íjórar barnshaf- andi konur. Lög voru sett í Færeyjum árið 1988 sem kveða á um rétt allra kvenna til dagpeninga í 26 vikur vegna barnsfæðingar cn það eru að- eins konur, sem vinna hjá hinu opin- bera, sem hafa með samningum síns stéttarfélags tryggt sér svo langt or- lof. Konur hjá útfiutningsfyrirtækinu fyrrnefnda eru ekki í stéttarfélagi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

19. júní

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.