19. júní


19. júní - 19.06.1991, Síða 57

19. júní - 19.06.1991, Síða 57
Eftirfarandi T,símahleranir‘‘ eru byggðar á reynslu- sögum fjölmargra ungra kvenna sem höfu sambúð með heittelskuðum unnustum í þeirri sælu trú að íslenskar mædur hefðu alið syni sína upp í anda frelsis, Je-Fnré-ttis og t»r« Þær trúa ekki lengur.___ Það sem tengdamamma gleymdi... eftir Vilborgu Davíðsdóttur Sigf’a? Sæl, þetta er ég. I á, við erum loksins flutt. Fengum tveggja herbergja íbúð. Já, ég var alveg búin að fá nóg af að búa heima hjá mömmu og pabba hans Nonna. Ég meina, þau eru auðvitað ágæt en maður verður nú að hafa eitthvað prí- vatlíf, ha? Við erum búin að vera út um allt að kaupa alls konar dót til heimilisins. Pæld’í’ðí, ég að stofna heim- ili, vá! Við fengum æðislegt sófasett frá tengdó og svo erum við að skoða markaðina með notuðu húsgögnin, þú veist. Gvuð, veistu, ég er svo spennt yfír öllu. Nonni er svo æðislegur og við tölum um allt mögulegt. Börn, peninga, húsverkin og allt. Hvað honum finnst um það? Bara, svipað og mér eða það held ég alla vega. Hann hefur aldrei sagt neitt um að hann sé ekki til í að gera það sama og ég á heimilinu. Ég meina, heldurðu að ég færi að verða svona hrifin af einhverri karlrembu sem neitar að vaska upp, ha? Strákar núorðið eru ekki eins og pabbi var þegar hann var ungur. Það var allt öðruvísi þá, konur unnu ekki einu sinni úti. Allar límdar við eldhúsvaskinn, með börn- in hangandi í pilsunum og kallinn berjandi í borðið. Nci takk, ekki hún ég. Nei, blessuð vertu ekki að hafa áhyggj- ur af mér. Þú hefur nú alltaf þjáðst af einhverjum stóru- systur-komplexum! Nonni er meiriháttar og ef það verð- ur eitthvert vesen þá ræði ég það bara við hann og við leysum málin. Já, við tölum betur saman seinna. Bless, bless. Tenf’damanmia? Sæl, þetta er ég. Já, bara allt fínt. Nei, Nonni er ekki heima. Það var nú eiginlega út af honum sem ég hringdi. Eða, sko út af þvottinum. Já, veistu, ég er að hugsa um að drífa í því að kaupa þvottavél. Við kaupunt hana bara út á kortið. Nei, ég veit að þér finnst það ekkert mál að þvo af okk- ur en sex mánuðir eru heldur langur tími. Sko, ég ætlaði 57
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

19. júní

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.