19. júní - 19.06.1991, Síða 21
Guðrún Ólafsdóttir dosent
Háskola íslands
smmów
oc Bmmm
FRÁ SJÓNARHÓLI KVENNA
• Ingólfur frændi minn lauk prófi í félagsfræði í fyrravor og eftir að hann hafði leitað sér
að vinnu í Reykjavík allt sumarið árangurslaust réði hann sig í kennslu i kaupstað úti á
landi. Hann kann bara vel við sig, finnst gaman að kenna, er kominn í kirkjukórinn og á kaf
í leiklistarstarfið á staðnum. Þegar hann kom heim um jólin var hann að tala um að taka
réttindapróf í kennslu- og uppeldisfræði svo að hann gæti fengið stöðu við skólann til fram-
búðar. En með vorinu er hljóðið orðið daufara í honum. Það eru engar stelpur á lausu og
Jón Ingi, vinur hans í plássinu, er á förum suður af því að Gugga, kærastan hans, ætlar að
fara í skóla. Hún getur ekki hugsað sér að eyða allri ævinni í fiski eins og mamma.
• Sigurbjörg er fædd og uppalin í þessum kaupstað. Hún er að ljúka prófi í hjúkrunar-
fræði. Hún hafði alltaf hugsað sér að fara heim að námi loknu og vinna við heilsugæslustöð-
ina en nú er hún komin í sambúð og fyrir Þorleif sambýlismann hennar, sem er verkfræðing-
ur, er ekki hægt að fá þar starf við hæfi. Þau geta ekki hugsað sér að búa hvort á sínum
staðnum, jafnvel þótt þau gætu verið saman um helgar. Sigurbjörg sér fram á að hún muni
ekki flytja heim í bráð. Henni þykir það leitt og hún veit að hún er ekki ein um það. Fólkið
á staðnum er orðið þreytt á því að hjúkrunarfræðingarnir, eins og reyndar obbinn af kennur-
unum, eru alltaf að koma og fara og það hafði gert sér góðar vonir um að fá hana til fram-
búðar.
• Hailiði býr myndarbúi á góðri jörð inni í dalnum með móður sinni sem er ekkja. Hann
er þrítugur búfræðingur og áhugasamur urn búskapinn eins og faðir hans, sem hafði byggt
vel upp, og kvótinn er viðunandi. En hún Sigurlín móðir hans er farin að hafa áhyggjur
af Hafliða. Hann er enn ókvæntur. Það eru engar ógiftar stúlkur í sveitinni og ekki um
auðugan garð að gresja í kaupstaðnum eða sveitunum í kring. Stúlkurnar hverfa á brott í
framhaldsskóla eða í vinnu suður jafnskjótt og þær eru búnar í grunnskólanum ef þær eru
þá ekki þegar komnar í sambúð. Sigurlín óttast að Hafliði muni bætast í hóp allra ein-
hleypu karlanna sem hokra á mörgum býlunum í sveitinni.
• Og svo er það hún Lóa. Hún er dugnaðarkona á fertugsaldri, fráskilin með einn son ný-
lega fermdan. Hún starfar við hótelið og býr í ágætu raðhúsi og hefur komið sér ljómandi
vel fyrir. En henni finnst starfið leiðinlegt og einhæft og vill gjarnan komast í annað sem
rcyndi meira á krafta hennar og hæfileika en það er ekkert annað að hafa. Ég myndi flytja
á morgun, segir hún hverjum sem heyra vill, ef ég fengi nóg fyrir húsið mitt til að kaupa
sæmilega íbúð í blokk fyrir sunnan.
21