19. júní - 19.06.1991, Page 24
Er borgvæðing sveitanna lausnin?
Eitt er byggðastefna og annað samfé-
lagsþróun. Af þessu tvennu er hið
síðara máttugra. Samgöngubætur
eru greinilega fyrir stafni í samfélagsþróuninni. Koma
þær e.t.v. til með að hafa meiri áhrif á aðstæður kvenna
á landsbyggðinni en hugsanleg byggðastefna?
Verða þær til að auðvelda stúlkunum flutninginn suður
eða til að auka staðfestuna af því að munurinn milli
borgarlífs og lífs á landsbyggðinni verður minni og það
verður auðveldara að veita sér gæði beggja?
En á bak við allt þetta sér í skuggann af EB og EES -
en það er annar kapítuli og verður ekki rakinn hér.
Heimildir:
Birgit Helene Jevnaker 1989: Kvinner og regional utvikling - kunn-
skaps- og forskningsbehov sett med norske öjne. I: NordREFO 1989/1,
bls. 5-30.
Byggðastofnun & Samband íslenzkra sveitarfélaga 1987: Hefur
Byggðastcfnan brugðizt? Reykjavík.
Elisabeth Sundin 1989: Kvinnors liv och arbete och regionalutveckl-
ing - en mángtydig bild. I: NordREFO 1989/1, bls. 68-84.
Framkvæmdastofnun ríkisins 1975-78: Austurlandsáætlun I-II. Reykja-
vík. Aætlanadeild.
Hagstofa íslands 1989 & 1990: Hagtíðindi. Desember. 74. & 75. árg.
Landbúnaðarráðuneytið 1989: Konur í landbúnaði. Reykjavík. (Ljós-
rit).
Marta O. Jensdóttir: Atvinnumál kvcnna í dreifbýli. Reykjavik. Félags-
mála-, landbúnaðar- og iðnaðarráðuneytið. (Ljósrit).
NORRÆNA HÚSIÐ
POHJOLAN TALO
NORDENS HUS
JR 17030
Velkomin í Norræna
húsið — þar er alltaf
eitthvað að gerast
KAFFISTOFAN:
Gómsætir réttir fást við vægu verði.
Dagblöð frá Norðurlöndum liggja frammi.
Opið virka daga kl. 9—19
sunnudaga kl. 12—19
BÓKASAFNIÐ er opið virka daga kl. 13—19
sunnudaga kl. 14—17
Norrænar fagurbókmenntir og fagtímarit.
SÝNINGARSALIR i kjallara: Arið um kring
sýningar á norrænni list og listiðnaði.
Iráði er að halda alþjóðlega
kvennaráðstefnu á íslandi í júní
1992. Hugmyndin að ráðstefnunni
kviknaði þegar bandaríska kvenfrels-
iskonan Betty Friedan kom til íslands
í boði Kvenréttindafélagsins í júní
1990 ásamt hópi bandarískra kvenna
sem unnið hafa lengi í kvennabaráttu.
Undirbúningur ráðstefnunnar verður
samvinnuverkefni íslenskra og banda-
rískra kvenna.
Verndari ráðstefnunnar verður Vig-
dís Finnbogadóttir forseti og til henn-
ar boða íslenskar konur í Kvennalist-
anum og öðrum stjórnmálasamtök-
um, auk Kvenréttindafélagsins og for-
sætisráðherra. Síðan er ráðgert að
íslensku gestgjafarnir njóti fulltingis
ýmissa valinkunnra erlendra aðila
sem verði meðbjóðendur og hvetji til
þátttöku, þ.á.m. Betty Friedan. Þessir
aðilar hafa þegar verið tilnefndir og
munu væntanlega verða um tuttugu
talsins.
Fyrirhugað er að bjóða til ráðstefn-
unnar fyrst og fremst konum en einn-
ig körlum sem hafa með hugmyndum
sínum eða starfi lagt fram mikilvægan
skerf til réttindabaráttu kvenna og
nýrra, jákvæðra viðhorfa á ýmsum
sviðum þjóðlífsins, t.d. í stjórnmálum,
félagsmálum, listum og vísindum.
Áformað er að fjöldi ráðstefnugesta
verði allt að 1000 en gera verður ráð
fyrir hlutfallslega meiri þátttöku ís-
lenskra kvenna en frá öðrum þjóðum.
Tungumál ráðstefnunnar verður
enska en túlkað verður á íslensku og
önnur tungumál til að auðvelda kon-
um þátttöku.