19. júní - 19.06.1991, Page 34
Hún er forseti Hæstaréttar Islands.
Hún er einn þriggja handhafa forsetavalds
■ fjarveru forseta Islands. Hún er kona
ann 1. janúar, 1991, tók Guðrún Erlendsdóttir
við embætti forseta Hæstaréttar íslands. Hún
er fyrsta konan sem skipar þetta virðulega
embætti og, sem forseti Hæstaréttar, er hún ein
þriggja handhafa forsetavalds í fjarveru forseta
Islands. Of langt mál væri að þylja feril viðmæl-
anda okkar en óhjákvæmilegt er að stikla á stóru í ferli
Guðrúnar. Hún útskrifaðist frá lagadeild Háskóla íslands
árið 1961 og árið 1967 öðlaðist hún réttindi til að flytja
mál fyrir Hæstarétti. Samhliða málflutningsstörfum
kenndi hún við Háskólann frá 1970, var skipuð lektor
frá 1976 og dósent frá árinu 1979. Guðrún hefur einnig
starfað að félagsmálum og um skeið var hún varaborgar-
fulltrúi í Reykjavík og síðar í Garðahreppi. Hún var for-
maður Jafnlaunaráðs 1973, skipuð af Hæstarétti.
Samkvæmt lögum er skipt um forseta og varaforseta
Hæstaréttar á tveggja ára tímabili og að sögn Guðrúnar
er venjan sú að varaforseti taki við embætti forseta réttar-
ins eftir tvö ár. Ákveðin venja ríkir um hver tekur sæti
forseta Hæstaréttar. „Það eru dómararnir sjálfir sem kjósa
nýjan forseta en hins vegar er venjan sú að sá sem lengst
hefur setið í réttinum er kosinn í forsæti,“ scgir Guðrún.
34
„Eftir að forseti hefur setið í tvö ár kernur sá dómari sem
hefur næstlengsta starfsferlinn og síðan koll af kolli.“
í Hæstarétti eru átta dómarar, sem starfa í tveimur deild-
um, annars vegar í fimmmannadeild og liins vegar í
þriggjamannadeild. „Langflest mál fara fyrir fimm-
mannadeildina og er málflutningur hjá þeirri deild þrisv-
ar í viku,“ segir Guðrún, „og minniháttar mál og kæru-
mál fara í hina deildina. 1 sérstökum tilfellum, til dæmis
þegar fjallað er um Stjórnarskrána eða í sérstaklega þýð-
ingarmikilum málum, dæma sjö dómarar.“ Guðrún bend-
ir á að það sé einnig viss hringrás dómara í deildunum
tveimur og að samkvæmt ákveðnum rcglum llytjist dóm-
arar á milli deilda.
Hverjar eru skyldur forseta Hæstaréttar?
„Forseti er í forsæti réttarins við réttarhöld og stjórnar
störfum dómaranna og dómsins sem slíks.“ Aðspurð
bætir Guðrún því við að mál séu tekin fyrir í þeirri röð
sem þau berast: „Þess ber að geta að það er langur bið-
tími þar til mál eru tekin fyrir og reyndar cr staðan sú í
dag að það er eins og hálfs árs biðtími fyrir ný mál. Ef
um er að ræða opinber mál reynir dómurinn að taka þau
J