19. júní - 19.06.1991, Page 44
Eíns og kunnugt er samþykkti Alþingi
þingsályktunartillögu um manneldis- og
neyslustefnu þann 19. maí "I 989.
*ad er staó- || reynd aö
amhengi er '/** milli matar-
Meö æski- ÍhiS 1 legu matar-
ói má oft á / tíóum draga
úr sjúkdóm- um, jafnvel
koma í veg A fyrir þá.
þjóðarinnar k | * H gert sér grein
fyrir »9 s»aj« Cl 1 ' | má að m»ö
manneldis- og neyslustefnu sé átt vió mat-
vælastefnu sem hefur aó leióarljósi heilsu-
öi fyrir þjóöin;
Maiuieldis-og neyshtstefim
áískmdi
Texti: Unnur Stefánsdóttir
Hvernig varð
manneldis- og
neyslustefnan til?
í samstarfssamningi fyrri ríkisstjórn-
ar og málefnasamningi ríkisstjórnar
Steingríms Hermannssonar er kveðið
á um mótun manneldis- og neyslu-
stefnu fyrir íslensku þjóðina.
Fyrrum heilbrigðis- og trygginga-
málaráðherra, Guðmundur Bjarna-
son, tók þetta mál upp í ríkisstjórn-
inni í janúar 1988 og lagði fram tillög-
ur um mótun manneldis- og neyslu-
stefnu. Ríkisstjórnin samþykkti tillög-
ur ráðherra og ákveðið var að eftirfar-
andi ráðuneyti tækju þátt í þessu
starfi: Heilbrigðis- og tryggingamála-
ráðuneyti, Landbúnaðarráðuneyti,
Sjávarútvegsráðuneyti, Viðskipta-
ráðuneyti og Iðnaðarráðuneyti.
Auk þess var gert ráð fyrir að full-
trúar í Manneldisráði tækju þátt í
starfinu.
Skipaðir voru samráðs- og vinnu-
hópar með fulltrúum ofangreindra
aðila, sem vinna áttu að mótun opin-
berrar manneldis- og neyslustefnu.
Af þessu sést að unnið var að þess-
ari stefnumótun á mjög breiðum
grundveili og með hagsmuni margra
aðila í huga. Heilsusamlegt mataræði
var þó það atriði, sem alltaf var haft
að leiðarljósi, þó að vissulega þyrfti
stundum að komast að samkomulagi
um einstaka þætti.
44
J