19. júní


19. júní - 19.06.1991, Side 53

19. júní - 19.06.1991, Side 53
Hvers vegna má vinnuveitandi ekki bæta konu upp tekjumissi í fæðingarorlofi? Texti: Bryndís Kristjánsdóttir -Ýmislegt tam fæðingar- orlof og baráttuna fyrir bættri stöðu kvenna í þeim málum að eru í raun aðeins fáein ár síð- an öllum konum á íslandi voru tryggð þau sjálfsögðu grundvallar- mannréttindi að eiga rétt á nokkurra mánaða orlofi eftir fæðingu barns, þar sem útivinnandi konur halda launum sínum að öllu eða einhverju leyti og þær heimavinnandi fá fæðingarstyrk. Of langt mál yrði hér að rekja sögu fæðingarorlofs á íslandi, en þess má geta að fæðingarstyrkjar eða hjálpar vegna fæðingar er fyrst getið í lögum um alþýðutryggingar, sem tóku gildi árið 1937, þar sem segir, að heimilt sé að greiða styrk vegna barnsfæðing- ar. Árið 1943 var gerð sú breyting að sjúkrasamlögum var gert skylt að greiða konunni annað hvort fæðing- arstyrk eða dvalarkostnað hennar á fæðingarstofnun. Árið 1954 var kon- um, sem störfuðu hjá hinu opinbera, tryggður sá réttur að vera í barneign- arfríi í þrjá mánuði á launum. Síðan var konum smám saman tryggður fæðingarorlofsréttur í einstaka kjara- samningum þar til samþykkt voru lög árið 1975 um að greiðslur þessar færu fram í gegnum Atvinnuleysistrygging- arsjóð. Þannig var þetta þar til lögin um fæðingarorlof tóku gildi í kringum 1980, en með þeim er öllum konum tryggður réttur til fæðingarorlofs og

x

19. júní

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.