19. júní


19. júní - 19.06.1991, Page 58

19. júní - 19.06.1991, Page 58
að biðja þig að fá Nonna til að samþykkja það. Honum finnst svo ágætt að hafa þetta svona en ég er nú eiginlega með samviskubit. Þú ert alltaf búin að brjóta allt saman og strauja þegar ég kem að taka af snúrunum og þú hefur nú alveg í nógu að snúast, ha? Jæja, það er fínt. Segjum það þá. Já, bless, bless. Siggd, sæl! Já, þetta er ég. Heyrðu, ég fékk Nonna loks til að samþykkja að kaupa þvottavél, en hugsaðu þér, hann kunni ekki á hana, sagðist ekki geta lært á alla takkana! Og hann sem er svo klár að gera við bílinn. Veistu, ég var orðin svo hund- leið á þessu að ég hætti bara að þvo af honum. Já, hætti bara! Henti Öllum fötunum hans í körfu og þvoði bara af mér. Þú hefðir átt að sjá svipinn á drengnum þegar hann áttaði sig og fór fram í þvottahús með leiðarvísinn eftir tvær vikur! Ég skil þetta samt ekki með hann Nonna. Tengdam- amma er á kafi í alls konar félagsstörfum, voða meðvituð og allt. En Nonni er bara litla barnið hennar ennþá. Þú ættir að heyra í henni þegar við förum í mat upp eftir um helgar. Talar við hann eins og smábarn, ég get svo svarið það! Hún er kannski að komast á þetta breytingar- skeið, þú veist. Þá fara konur allt í einu að fatta að börn- in eru flogin úr hreiðrinu og gera allt sem þær geta til að halda í þau. Gera sig ómissandi með því að vera allt- af að gera eitthvað fyrir þau, bjóða í mat og svoleiðis. Annars er hún nú ekkert svo gömul, hún er alltaf að tala um þessa frægu 68-kynslóð sína. En ég má nú ekki bara kvarta. Nonni þvær stundum upp, já, já. Gallinn er bara sá að hann skilur allt leirtau- ið eftir í grindinni og gleymir að þvo pottana. Svo þarf ég alltaf að fara fram og þurrka af borðunum og skola úr borðtuskunni. Heyrðu, hann er að koma inn, ég þarf að hlaupa. Bless, bless. Mamma? Sæl, þetta er ég. Bara allt ágætt. Af hverju heldurðu að það sé alltaf eitthvað að þegar ég hringi? Láttu ekki svona, mamma. Nei, það er bara smávesen hjá okkur Nonna. Ekkert sem við getum ekki leyst sjálf. Nei, það er bara þetta með matinn. Sko, ég er alltaf búin að vinna klukk- an fimm en hann klukkan sex. Ég fer auðvitað í tiltektina þegar ég kem heim, tíni af borðinu, tek saman blöðin, vökva blómin og það allt. Tek saman föt og sting í þvottavélina. Svo elda ég alltaf matinn. Alltaf, ég get svarið það. Drengurinn kann ekki neitt í eldhúsinu. Jú, jú, mér finnst allt í lagi að elda. Bara ekki alltaf. Svo er ég svo mikið að hugsa um hvernig þetta verður allt núna þegar tvíburarnir fæðast eftir nokkrar vikur og ég fer að vera heima allan daginn. Já, ég veit. Þetta tekur allt tíma. Já, ég veit að pabbi er svona líka en þú hefur alltaf sagt að það sé af því að hann sé miðaldra og hafi aldrei þekkt neitt annað. Nonni er ekki nema 24 ára. Af hverju léstu mig eiginlega halda að í dag væru allir karlmenn svo mjúkir og voðalega jafnréttissinnaðir? Það hefði verið í den sem karlrembusvínin voru uppi? Kræst! Segðu mér annars, ertu búin að kenna Bróa á þvottavél- ina? Nei, ég bara spyr. Hann er nú að verða tvítugur og ætti að geta lært á leiðarvísi. Mér finnst bara að þú ættir að kenna Bróa á þvottavél alveg eins og þú kenndir mér þegar ég bjó heima. Þú gætir til dæmis sagt honum að hann hafi miklu meiri séns ef hann er klár á tækniatriðun- um á heimilinu. Þeir eru örugglega ekki margir á markað- inum sem geta grobbað sig af því! Heyrðu, Nonni er að kalla á mig, hann finnur ekki sokkana. Ég tala við þig seinna, mamma mín. Já, bless. Tengdó? Sæl, þetta er ég. Já, ég var að koma heim í gær með strákana. Þeir sofa voða mikið, þannig að þetta gengur ágætlega. Nonni er í vinnunni, ekki veitir af núna. Jú, ég er viss um að fötin sem þú prjónaðir passa ágætlega. Ég er bara ekki búin að máta þau á þá ennþá. Þau eru sko blaut, eða þannig. Já, Nonni tók sig til á meðan ég lá á sænginni og þvoði allt sem var óhreint af okkur og öll barnafötin eins og ég bað hann um. Þegar ég kom heim í gær þá labbaði minn maður eins og herforingi inn í þvottahús og sýndi mér hvað hann var búinn að vera duglegur. Já, finnst þér ekki? Það eina sem ég þurfti að gera var að hengja upp þvottinn. Jú, svolítið, svona tveggja metra hár stafli. Nei, það er satt hjá þér, það var auðvitað erfítt fyrir hann að vera einn heima. En hann var nú í mat hjá þér. Nei, nei, ég er ekkert að kvarta, nei, alls ekki. Heyrðu, strákarnir voru að vakna. Ég hringi aftur seinna. Já, þeg- ar ég er búin að taka af snúrunum og brjóta saman. Já, bless, bless. Sigga? Hæ, takk fyrir síóast! Já, æðislega gaman, fannst þér ekki? Ég var hreinlega búin að gleyma hvernig er að fara á ball karlmanns- laus. Skrítið, ég bara leit ekki á karlmann þarna á laugar- daginn. Nei, ekki endilega út af Nonna. Nei, veistu, ég held að ég sé bara farin að hugsa öðruvísi um stráka. Veistu hvað ég sagði við þennan dökkhærða sem var allt- af að sniglast í kringum borðið hjá okkur? Ég spurði hann hvort hann hefði sjálfur straujað skyrtuna sína! Upplitið á greyinu. Hann vissi ekkert hvernig hann átti að taka þessu og forðaði sér á hlaupum. Hann hefur haldið að hann væri kominn í klærnar á einhverri aga- legri rauðsokku! Jú, þetta var ágætt. Verst að vakna klukkan sjö á sunnu- dagsmorguninn við strákana. Þeir vildu auðvitað ekki sjá að sofna aftur. Nonni alveg hrútfúll og abbó af því að ég heimtaði að fara ein út með þér. Hann sem hittir sína félaga tvisvar í viku í líkamsræktinni. „En það er auðvit- að ekki það sama“, segir hann. Hvað sagði Palli? Fannst honum þetta gott fyrir þig? Já, svoleiðis. Sagði hann það? Já, við ættum kannski að stofna svona saumaklúbb eða eitthvað. Jæja, gaman að heyra í þér. Já, bless, bless. Sigga? Hæ, þetta er ég. Veistu, ég var að gerast áskrifandi að kvennablaðinu, þú veist. Já, ég er orðin svo meðvituð! Það er mjög margt sniðugt í þessu blaði. Heilmikið um launamál og svoleiðis. Líka um hvernig konur á framabraut eiga að bera sig. Þær eru víst svo pirraðar yfir því að karlarnir vilja ekki viðurkenna kvennasjónarmið. Og að fá ekki stöðuhækkanir og þannig. Svo eru margar sem eru svo reiðar af því að það er aldrei talað við þær í blöðunum, bara karlana. Og hefurðu tekið eftir því að allir brandararnir í blöðun- 58 J

x

19. júní

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.