19. júní - 19.06.1991, Side 60
Texti:
ryndís Kristjánsdóttir
y y m m efurðu ekki fundið
sjúkraþjálfarinn.
Konan reyndi að svara ái
unni beint; ■ fyrsta iagi ve
nAeins t*unn tjolcfl sem að
sjúklingum sjúkraþjálfar
|>ess eð hún hafði
frá því ■ síðasta
hvernig nýlærðu
verkuðu á kynlífið
hún ekkfl að vlður
þjálfaranum, eðe
kynnu að hlýða
un é kynlífinu?spurði
iÞess;
gna þe
skifldu
S svara spurning-
s að það voru
ann frá næstu
■ öðru flagi vegna
ekkl haft tækífæri
tímu til að prófa
fingarnar
n það ætlaði
kenna fyrir sjúkra-
öðrum s«
Þ etta hófst allt saman nokkrum
vikum fyrr þegar hún var í skoðun
hjá kvensjúkdómafræðingi. Aðaltil-
gangurinn með heimsókninni til hans
var að láta kanna hvort lykkjan væri
ekki örugglega á sínum stað og annað
í lagi á þeim vígstöðvum en þá hafði
læknirinn sagt: „Þú ert með ansi mik-
ið legsig ... hefur það ekki háð þér
ef þú þarft að halda í þér þvagi, eða
í kynlífinu?“
Eftir nokkra umhugsun stundi hún:
„Jú, ég get yfirleitt ekkert haldið í
mér. Ef ég þarf að pissa verð ég að
komast strax á klósett, en ég veit ekki
með kynlífið ... hvaða áhrif hefur leg-
sig á kynlíf?“
„Jú, því geta fylgt ýmis óþægindi
og jafnvel sársauki. Þú ert með ansi
mikið legsig og úr þessu gerir það
varla annað en versna þannig að ég
tel að þú verðir að fara í skurðaðgerð
og láta laga þetta; en þú ert nú enn
það ung að þú hefur kannski ætlað
þér að eignast fleiri börn? Það verð-
urðu þá að gera fyrir aðgerð.“
Þetta voru ekki góðar fréttir og hún
var á engan hátt undir þær búin, en
eftir nokkra umhugsun sagði hún
feimnislega: „Mig hefði kannski lang-
að til að eignast eitt barn í viðbót en
er það kannski erfitt fyrir mig út af
þessu legsigi?“
„Það á ekki að þurfa að vera það
en þú gætir prófað að fara til sjúkra-
þjálfara sem myndi hjálpa þér að
þjálfa grindarbotnsvöðvana. Það gæti
bætt ástandið. Sumar konur geta náð
sér mjög vel með æfingum og geta
jafnvel sloppið við skurðaðgerð en ég
er hræddur um að hjá þér sé um of
mikið slit að ræða ...að minnsta kosti
ætti þetta að geta hjálpað þér að halda
í horfinu svo að þú versnir ekki mik-
ið.“
Hún samþykkti auðvitað að fara í
grindarbotnsvöðvaþjálfun (hvað svo
sem það var nú) og læknirinn hringdi
og pantaði fyrir hana tíma hjá sjúkra-
þjáífara.
Viku síðar var hún mætt í fyrsta
tíma. Sjúkraþjálfarinn var kona á
svipuðum aldri og hún sjálf, rétt rúm-
lega þrítug, vingjarnleg og auðvelt að
60