19. júní - 19.06.1991, Page 68
Tímabundinn forgangur
Framhald af bls. 37.
kynjanna.“ Ég svara honum með ann-
arri spurningu: Ef enginn einstakling-
ur vill taka þátt í að afnema misréttið
á þeirri forsendu að heildin eigi sök
á því hver ætti þá að gera það? Stjórn-
völd? Jú, við gætum ef til vill verið
sammála um að þau ættu að koma
tii sögunnar hér. En hvaða aðferðum
gætu þau beitt sem væru vænlegar til
árangurs? Svar mitt er að þau gætu
stuðlað að því að reglur um tíma-
bundinn forgang yrðu teknar upp sem
víðast. Og þá erum við komin í hring.
Kvenkyns andmælandi minn gæti
sagt sem svo: „Ég þigg ekki stöðu
vegna reglu um tímabundinn forgang.
Starfsbræður mínir myndu fullyrða
að mér hefði verið veitt starfið ein-
göngu vegna þess að ég er kona en
ekki vegna þess að ég sé hæf til að
gegna stöðunni. Umtalið myndi eyði-
leggja möguleika mína til að sinna
starfínu á fullnægjandi hátt. Fremur
vildi ég að kastað hefði verið krónu
um stöðuveitinguna."
Þessu gæti ég aðeins svarað sem svo
að konan gæti litið á slík viðhorf sem
áskorun um að sanna í verki að regl-
an sé til bóta. Víst er að konur hafa
yfírstigið hærri þröskulda í baráttunni
fyrir jafnrétti en neikvætt umtal. Hlut-
kesti mun seint ráða stöðuveitingum
hérlendis, þar koma oftar til þættir
eins og pólitísk tengsl og fordómar
af ýmsu tagi.
„Enginn er eyland“ sagði skáldið
og það á vel við hér. Sem manneskjur
berum við ekki aðeins ábyrgð á eigin
velferð heldur einnig á velferð heildar-
innar. „Á ég að gæta systur minnar?“,
gæti sá karlmaður spurt sem neitað
var um yfirmannstöðuna vegna þess
að jafnhæf kona var ráðin til starfans
á grundvelli reglunnar um tímabund-
inn forgang. Svar mitt er: Já.
Séu rök mín samþykkt er einni
spurningu þó enn ósvarað. Forgang-
urinn er tímabundinn. Hvenær rennur
upp sá tími að hann skuli afnema?
Svar mitt væri á þá leið að tímabund-
inn forgang kvenna gætum við afn-
umið þegar við getum litið yfir farinn
veg, skoðað stöðu dagsins í dag, horft
fram á við og sagt með góðri sam-
visku: „Þetta er réttlátt samfélag þar
sem bæði kynin hafa jafnan aðgang
að hinum ýmsu störfum. Ætlunar-
verkinu er lokið.“
Garðastál er þrautreynt eíní 1 hœsta gœðaílokki á þök og
veggi utan sem innan. Allir fylgihlutir fyrirliggjandi og einnig
slétt efni. Sersmíði eftir oskum hvers og eins. Við afgreiðum
Garðastálið 1 oiium lengdum á þök og veggi. Hringið. komið
eóa skrifið og fáið ráðgjof og kostnaðaraœtlun
Sirni
91
52000
HEÐINN =
Storasi 6 210 Garðabœ
[HOmimiAHHF
68
I