19. júní - 19.06.1991, Page 73
Ársskýrsla stjórnar KRFÍ
Viðamesta verkefni KRFÍ árið 1990 var afmælishátíðin vegna 75 ára kosningaréttar kvenna
6. Framkvæmdanefnd um launamál
kvenna.
Fulltrúi þar er Ásthildur Ketilsdótt-
ir.
7. Mæðrastyrksnefnd.
Ingibjörg Snæbjörnsdóttir er okkar
fulltrúi þar. Þar voru unnin hefð-
bundin störf, rnikil úthlutun fór fram
um síðustu jól enda neyðin víða mik-
'f Viðbrögð almennings við ákalli
nefndarinnar voru jákvæð og ánægju-
leg.
Menningar- og Minningarsjóður
kvenna.
Hjördís Þorsteinsdóttir er formaður
þeirrar nefndar.
9. Áhugahópur um varðveislu og
framgang Kvennasögusafns íslands.
Guðrún Gísladóttir skipar þann hóp
fyrir okkar hönd.
10. Jafnréttisráð.
Aðalmaður þar er Guðrún Árna-
dóttir. Til vara er Ragnhildur Hjalta-
dóttir.
Mestur tími ráðsins fór í umfjöllun
á ýmsum kærum er því bárust. Flestar
kærur bárust frá konum er töldu á
sér brotið við stöðuveitingar. Það
mál, er mesta athygli vakti, var erindi
Rögnvaldar Símonarsonar þar sem
hann óskaði eftir áliti ráðsins á því,
hvort ákvæði reglugerðar no. 410189
um barnsburðarleyfi starfsmanna rík-
isins brjóti í bága við ákvæði 4.gr.
laga nr. 65/1985 um jafna stöðu og
jafnan rétt kvenna og karla.
Jafnréttisráð klofnaði í áliti sínu á
máli þessu. Meirihlutinn taldi svo
ekki vera en tveir aðilar skiluðu sér-
áliti, þar sem þeir töldu, að fastráðnir
karlmenn, sem starfað hafa samfellt
í sex mánuði eða lengur hjá ríkinu,
eigi rétt á að njóta sömu kjara taki
þeir fæðingarorlof og þær konur sem
þessi skilyrði uppfylla. Önnur kjör til
handa körlum verður að teljast stríða
gegn 1 .gr.,4.gr„ og 5.gr. laga no. 65/85
um jafna stöðu ogjafnan rétt kvenna
og karla.
Ný jafnréttislög voru afgreidd með
73