19. júní - 19.06.1996, Blaðsíða 11
Kvennaréttur
Lára V. Júlíusdóttir hdl.
Kvennaréttur er hugtak yfir þær greinar
lögfræði sem hafa sérstaka þýðingu fyr-
ir konur. Þetta er í sjálfu sér ekki sjálf-
stæð fræðigrein innan lögfræði heldur
spannar öll þau svið þar sem konur
njóta sérstöðu í löggjöf.
íða erlendis fer fram sérstök kennsla
við háskóla í þessu fagi, á dönsku heit-
ir þetta kvinderet, á sænsku
kvinnoratt og á ensku women’s law. Við
Háskóla Islands hefur ekki verið tekin
upp kennsla á þessu sviði og hefur
hugtakið kvennaréttur því ekki öðl-
ast sess hér á landi sem hugtak á
fræðigrein. Hugtakið er því í
raun ekki annað en íslenskun
á þeirri fræðigrein sem
kennd er erlendis á því
sviði innan lögfræði
sem tengist konum.
LAGADEiLD
Það svið lögfræði
sem tilheyrir kvenna-
rétti og er kennt við
lagaháskóla erlendis
er einkurn vinnurótt-
ur, fjölskylduréttur,
réttarfar, skaðabótarétt-
ur, tryggingaréttur og
refsiréttur. Sama ætti við
hér á landi. Jafnréttislögin
íslensku eru að verulegu
leyti bundin við þátttöku
kvenna á vinnumarkaði og
er ætlað að tryggja konum þar
jafnan rótt og jafna stöðu á við
karla. Fjölskyldurétturinn er
það svið iöggjafar sem snertir
hiutverk konunnar sem eigin-
konu og móður hvað mest og rótt
hennar á því sviði. Réttarfarið
fjallar meðal annars um sérstök
réttarfarsúrræði telji konur rétt
á sér brotinn á vinnumark-
aði. Skaðabótarétturinn
endurspeglar þá staðreynd
að tekjur kvenna eru ein-
ungis hluti af tekjum
karla, í tryggingaréttinum
er að finna ýmis sérákvæði um konur og refsirétturinn hefur að hluta
til verið kyngreindur. Kvennarétturinn tekur þessi svið til skoðunar
og kryfur þau til mergjar út frá nýju sjónarmiði.
I kennslu í kvennarétti sem fræðigrein er venjulega byrjað á því
að rekja lagaþróun og það hvernig réttarstaða kvenna hefur breyst
síðustu 100 árin áður en farið er að fjalla um stöðu konunnar í réttar-
ríki dagsins í dag. Ahersla er lögð á þau svið réttarins sem hafa áhrif
á stöðu flestra kvenna, kjör, launuð og ólaunuð störf, réttindi bæði í
sambúð, í hjúskap og við skilnað,
reglur tengdar foreldrahlutverkinu
og þá sérstöku vernd sem konur
njóta vegna kynferðis síns.
Evrópurétturinn hefur
einnig að geyma reglur
um jafnrétti kvenna og
karla. Jafnréttisá-
kvæði er einnig að
finna í ýmsum al-
þjóðlegum samning-
um svo sem samn-
ingi Sameinuðu
þjóðanna um afnám
allrar mismununar
gagnvart konum og
barnasáttmála
Sameinuðu þjóð-
anna.
Kvennaréttur
hefur verið kenndur
sem sérstakt kennslu-
efni í háskólum um
langt árabil í nágranna-
löndum okkar svo sem
Noregi og Danmörku. A
síðari árum hefur aukin
áhersla verið lögð á þetta
svið lögfræðinnar víðar,
svo sem í Bandaríkjunum
og Kanada. Skiptir þar
mestu máli að kvenfrelsis-
straumar síðustu áratuga eru
að skila sér inn í lögfræði
með líkum hætti og gerst
hefur á öðrum sviðurn
þjóðlífsins.