19. júní - 19.06.1996, Page 12
sögueyjunn
Lauren Piperno
er sjálfstætt starfandi Ijósmyndari sem kom hing-
aö til lands til aö mynda dætur sögueyjunnar.
Hún er kunnur Ijósmyndari og hafa myndir hennar
m.a. veriö birtar í „Smithsonian", „Philadelphia
Inquirer Magazine“ og „American Photographer".
Áhugasviö hennar innan Ijósmyndunar eru myndir
af fólki. Hún hefur mestan áhuga á aö taka mynd-
ir af fjölskyldulífi þess, þeirri hliö sem snýr aö-
eins aö þeim sem tilheyra fjölskyldunni. Þaö var
þó ekki fyrr en 1980 aö hún gerði sér grein fyrir
því aö aðaláhugi hennar var á hlutverkum kvenna
og karla í daglegu lífi. Hingaö til lands kom hún
fyrst 1994 og var hér í níu daga. 1995 kom hún
ööru sinni, þá á þriggja mánaöa styrk, til aö Ijós-
mynda íslenskar konur sem henni finnst sjálf-
stæðar og þurfi ekki karlmenn til aö stjórna heim-
ili, landi eða atvinnulífi.
Hún myndaði fjölbreytileika íslenskra kvenna,
konur til sjávar og sveita, framakonur sem
heimavinnandi.
19. júní fékk leyfi til aö birta nokkrar myndanna
en þær munu birtast í bókinni „Dætur sögueyj-
unnar“ sem kemur út bráölega.
í réttunum í Vopnafirði, Margrét Sigþórsdóttir og Kristín
Jónsdóttlr
1 0 19.júní
RIT KVENRÉTTINDAFÉLAGS ÍSLANDS