19. júní - 19.06.1996, Qupperneq 14
1
Kvenf r«
Þótt mælingar sýni að karlar nýti sér alnetið og
veraldarvefinn meira en konur er ekki þar með sagt
að kvenfrelsiskonur hafi setið hjá. Þær hafa svo um
munar tekið þátt í upplýsingabyltingunni sem er að
eiga sér stað með tilkomu alnetsins eða Internetsins.
Nú þegar er að finna þar mikið af efni sem varðar
k venf relsismál.
Anna Ólafsdóttir Björnsson
S
hugafólk um kvennasögu og kvenna-
bókmenntir hefur til dæmis aðgang að
ógrynni upplýsinga um hugðarefni
sín, allt frá stuttum æviágripum kven-
frelsiskvenna um allan heim til heilu skáld-
sagnanna, sem hægt er að nálgast á netinu.
Þarna er urmull af heimilsföngum kven-
frelsiskvenna og kvennahreyfinga út um allt,
sem hægt er að komast í bréfasamband við. Ef
þú vilt fá upplýsingar um bækur um kvenfrels-
ismál er þær að finna á netinu. Á nokkrum
bandarískum vefsíðum er hægt að nálgast ný-
leg greinaskrif í blöð og tímarit um kvenfrelsis-
mál, frumvörp og tillögur í bandaríska þinginu
og ýmislegt fleira fróðlegt. Ein slóðin sem ég
held sérstaklega upp á er með kvikmynda-
gagnrýni nokkurra kvenfrelsiskvenna og þar er
alltaf nýtt efni á boðstólum auk eldri dóma.
Póstlistar og ráðstefnur um kvenfrelsismál eru
í gangi undir ýmsum formerkjum og möguleik-
arnir til upplýsingaöflunar og tjáskipta eru að
því er virðist lítt takmarkaðir fyrir þá sem hafa
aðgang að tölvum og hafa vald á enskri tungu,
sem enn er mest ráðandi á netinu.
Hvernig er hægt að nálgast
efnið?
Einfaldasta aðferðin til þess að nálgast efn-
ið er að þekkja góða slóð sem leiðir þig áfram á
einfaldan hátt. Ég komst fljótlega á eina slíka
og hún hefur reynst mér drjúg. Hún er skipu-
lega upp sett og efnið sem hægt er að nálgast er
bæði fjölbreytt og þægilegt að finna það sem
hugurinn girnist. Þar er til að mynda kvik-
myndagagnrýnin góða og þar eru heilu skáld-
sögurnar sem hægt er að kalla fram á skjáinn
eða prenta út, en það tekur tíma. Slóðin er löng
og því öruggast að vista hana strax í ,,Add
bookmarks": http://www.inform.umd.edu:-
8080/Educational_Resources/AcademicReso-
urcesByTopic/WomensStudies.
Nýlega var slóðinni breytt og er þetta nýja
slóðin, en hún heitir Women’s Studies Reso-
urces. Ég fann hana strax aftur í einhverju leit-
arkerfinu með því að slá inn þessum þremur
orðum og voru það sætir endurfundir. Ef slóð-
inni verður aftur breytt síðar ætti að vera auð-
velt að nálgast hana á þennan hátt. Fyrir þá
sem vantar bækur um kvennafræði er gott að
skoða slóð sem Bóksala stúdenta býður upp á:
http://www.centrum.is/unibooks/felags-
fr/kvennl.html.
Fyrst þegar ég fór að flakka um vefinn var
sérstakur undirflokkur um kvenfrelsismál í
leitarkerfi a.m.k. eins íslensks þjónustuaðila,
en nú er flokkunarkerfi flestra orðið mun staðl-
aðra og byggt á sama kerfi og bókasöfn nota.
Þar er efni um kvennafræði ekki flokkað allt
saman heldur á víð og dreif. Þess vegna er ein-
faldast að fara í leitarvélar sem Netscape, ís-
mennt, Miðheimar eða aðrir bjóða upp á, t.d.
Yahoo. Fljótlegast er að slá inn stikkorðum á
borð við ,,Women“ og „Feminism” og hnýta
svo við því sem við á hverju sinni, t.d. ,,Art“,
„Health" eða „Politics". Önnur leið er sú að
fara í undirflokka í leitarkerfum sömu aðila og
leita þar að efni um kvenfrelsismál en sú að-
ferð hefur reynst mér seinlegri og útkoman tak-
markaðri.
1 2 19.júní
RIT KVENRÉTTINDAFÉLAGS ISLANDS