19. júní - 19.06.1996, Side 15
Jafnrétti á v e r a I d a r v e f n u m
elsi á netinu
leit heldur er það vel nýtilegt í samskipti'af
ýmsu tagi. Einfaldast er að nota póstinn, skrifa
í þau netföng sem gefin eru upp á heimasíðum
ýmissa samtaka og einstaklinga og bíða eftir
svari. Fyrir þá sem láta sér það ekki nægja er
hægt að gerast áskrifandi að ýmsum póstlistum
sem auglýstir eru á heimasíðum kvenfrelsis-
samtaka. I tímaritinu Veru var nýlega bent á
nokkra gagnlega póstlista og umræðulista, þar
sem fjallað er um alls konar mál út frá sjónar-
miðum kvenna. Þar er umræðulisti um konur
og umhverfismál, kvenréttindi, bókmenntir
fyrir börn og fullorðna, lesbískar mæður,
kvennasögu o.fl. Eg læt fljóta með netfangið af
FEMISA umræðulistanum um kvenréttindi,
kynferði, konur og alþjóðleg samskipti og
stjórnmál: LISTPROC@CSF.COLORADO.EDU.
Vona að listinn sé enn í gangi. Þeir sem vilja fá
frekari upplýsingar um gagnlega póstlista geta
flett upp í Veru, marshefti 1996.
Gætið þess þó vel ef þið eruð á póstlista að
lesa póstinn nógu oft svo það komi ekki fyrir
ykkur að pósthólfið yfirfyllist. Það henti mig
nýverið og hólfið mitt var því í lamasessi í allt
of langan tíma. Hugbúnaðurinn sem tölvan
mín ræður yfir þoldi ekki allan póstinn, 153
bréf á 4 dögum.
Einnig er rétt að benda á að hægt er að taka
þátt í ráðstefnum á netinu, skiptast á skoðun-
um við fólk með sömu hugðarefni. Otal slíkar
byrjun á bandarísku slóðinni hér að ofan um
25 ráðstefnur í gangi um margvísleg málefni,
s.s. kynferðislega áreitni í skólum, konur,
vinnu og tölvunotkun og margt fleira áhuga-
vert. Sláið inn slóðina og veljið „Conferences"
og síðan efstu línuna sem leiðir ykkur áfram í
skráningu á ráðstefnuna.
Loks eru það spjallrásirnar. Þar verð ég að
skila auðu. Eg hef ekki séð neina spjallrás aug-
lýsta sem fjallar um kvenfrelsismál sérstaklega,
á þeim síðum sem ég hef flett að undanförnu.
En það er aldrei að vita ... ? Eg skora á ykkur
sem eruð að lesa þessi orð að senda 19.júní
línu ef þið vitið um góðar spjallrásir um kven-
frelsismál.
íslensk umræða um kvenfrelsismál er rýr,
ef nokkur, á netinu. Ur því má sjálfsagt bæta.
Til dæmis er auðvelt að senda stjórnmála-
mönnum, t.a.m. alþingismönnum bréf í net-
föng þeirra og sjálfsagt að nota þá leið til þess
að koma sjónarmiðum sínum um kvenréttindi
og fleira á framfæri. Þið finnið netföng þing-
manna á slóðinni: http://althingi.is/ og smellið
á stikkorðið þingmenn þegar þangað er komið.
Kvennalistinn er með heimasíðu á netinu þar
sem kvenfrelsismál eru til umræðu og vísað í
nokkra erlenda vefi sent gagnlegir eru. Síðuna
er hægt að finna á http://www.centr-
um.is/kvennalistinn/ Fleiri íslenskar slóðir get
ég ekki bent á að svo stöddu.
Hverjir eru með, hverjir
ekki?
En er netið þá algott - eða hvað? Nei, á því
er sá höfuðgalli að ekki eiga öll sjónarmið að-
gang að því. Heilu heimsálfurnar eru enn af-
skiptar í þeirri umræðu sem fram fer á netinu,
þeir sem búa við lágar tekjur og litla menntun
hafa sjaldan aðgang að því. Þetta skekkir um-
ræðuna óneitanlega alvarlega. Hins vegar eru
fulltrúar ijórða heimsins, frumbyggja, þjóðern-
isminnihluta, þjóðarbrota og smáþjóða, mjög
virkir á netinu og miðla bæði gagnlegum upp-
lýsingum og vekja spennandi umræðu, m.a.
um málefni kvenna víða um heim. Þannig get-
ur netið gagnast þeim vel sem búa dreift.
Frumbyggjar Ameríku og Astralíu eru til dæm-
is með öflug samskipti og kynningu á hags-
munum sínum og menningu á netinu. Eg rakst
t.a.m. nýlega á ágæta leið í þessa umræðu hjá
þeim Miðheimamönnum um flokkaðan vef
sem kallaður er „Tribal voice“. Aðgengi að net-
inu ætti að vera fremur hagstætt kvenfrelsis-
konum. Netið er hvað þróaðast í kringum
bandaríska háskóla og þar er áhugi á kvenfrels-
ismálum verulegur. Hér á landi eru það skól-
arnir, ekki síst á háskólastigi sem bjóða hvað
greiðastan aðgang að netinu og veraldarvefn-
um. Áskrift einstaklinga að netinu er álíka dýr
og að dagblaði og sé tölvubúnaður og mótald til
á heimilinu, fylgir því lítill kostnaður að tengj-
ast. Með aukinni tölvueign og tölvunotkun
mun aðgangur að samskipta- og upplýsinga-
netinu án efa vaxa og vonandi verður það til
þess að efla umræðu um kvenfrelsismál.
Anna Olafsdóttir Björnsson
Netfang: annari@ismennt.is
Heimasíða: http://rvik.ismennt.is/~annari
Góðar slóðir:
http://www.inform.umd. edu:8080/ Educational_
Resources/ AcademicResources ByTopic/ Womens-
Studies (alhliða listi um kvenfrelsismál) http://
www.centrum.is/ unihooks/ felagsfr/ kvennl.html
(Bóksala stúdenta) http://.althingi.is/(Alþingi)
http://www.centrum.is/kvennalistinn/ (Kvennalist-
inn) og loks ein skemmtileg slóð fyrir þær sem muna
eftir The Guerrilla Girls sem sýndu í Nýlistasafninu á
sínum tíma, frábær áróðursveggspjöld: http://
www.voyagerco. com/gg/gg.html (Guerrilla Girls)
1 3 19.júní
RIT KVENRÉTTINDAFÉLAGS (SLANDS