19. júní - 19.06.1996, Page 23
„Fáar konurí stjórnendahópnum"
segir Maríanna Jónasdóttir í fjármálaráðuneytinu
„Eldrí stjórnendur litu svo á aö konur og karlar heföu
þegar sömu tækifærin, “ segir Marianna.
Ifjármálaráðuneytinu hefur að undanförnu
verið freistað með ýmsum hætti, að jafna
kjaralega stöðu kvenna og karla, sem starfa
hjá stofnunum ráðuneytisins. Sérstakri nefnd
var falið að skoða hvort kynbundinn mismunur
væri þar í launamyndun, starfsframa, endur-
menntun og jafnvel einhverjum fleiri þáttum.
Nefndin lét meðal annars gera lauslega úttekt á
stöðu karla og kvenna í ráðuneytinu og stofnun-
um þess. Uttektin leiddi í ljós að konur séu al-
mennt með lægri laun en karlar óháð menntun
auk þess sem samsetning launa sé ólík eftir
kynjum. Ojafnt vægi kynjanna í hópi stjórnenda
virtist skýra stóran hluta af mismuninum en
jafnframt var vinnutími karla yfirleitt lengri en
kvenna.
Maríanna Jónasdóttir, deildarstjóri efnahags-
skrifstofu, leiddi starf nefndarinnar. Hún segir
að niðurstöður úttektarinnar hafi leitt í ljós áber-
andi kynslóðaskiptingu. Þannig telji yngri
stjórnendur mun frekar en hinir eldri að þörf sé
fyrir sérstakar jafnréttisáætlanir innan stofnana.
„Eldri stjórnendur litu svo á að konur og karlar
hefðu þegar alveg sömu tækifærin," segir Marí-
anna. Hún segir það hafa komið sér á óvart að
engin stofnun hafi haft fjarvistarskráningu
greinda eftir kynjum. „Þrátt fyrir það sögð-
ust stjórnendur yfirleitt hafa á tilfinning-
unni að konur væru meira frá vegna veik-
inda barna,“ segir Maríanna.
Hún segir það sláandi hve fáar konur
séu í stjórnendahópi innan fjármálaráðu-
neytisins og stofnana þess. „Þetta er svo
þrátt fyrir að störfin hér séu yfirleitt þess
eðlis að þau ættu að henta báðurn kynjum
jafn vel. Oft eru gerðar kröfur um lögfræði-
, viðskipta-, eða hagfræðimenntun. Þetta
eru greinar sem konur sækja ekki síður í
en karlar í Háskólanum." Maríanna telur
að rnikið vinnuálag og fæðingarorlof segi
sitt þegar starfsframi kvenna er annars vegar.
„Karlar sem voru ráðnir á sama tíma og þær ná
forskoti á þær þegar þær eru frá vinnu í 6 mán-
uði. Þeir taka í mesta lagi út sumarfríið sitt, þeg-
ar barn fæðist. Þegar konurnar korna til baka
óska þær oft eftir því að vera í hálfu starfi um
tíma. Um leið eru þeim ekki falin jafn mikilvæg
verkefni og körlunum, sem eru allan daginn í
vinnunni. Eftir að þær koma til baka er ábyrgðin
á barnapössuninni, veikindum barnanna og
fleiru sem því fylgir einnig yfirleitt á þeirra
herðum. Það er ætlast til þess af starfsfólki að
það geti alltaf unnið og þar hallar óneitanlega á
kvenfólkið," segir Maríanna. Hún telur að í
framtíðinni gætu þessar aðstæður breyst tölu-
vert með tækni. „Mörg verkefni er allt eins hægt
að vinna á tölvu heima í tengslum við vinnu-
stað. Það ætti einnig að geta komið báðum kynj-
um vel og aukið líkurnar á að karlar taki fæðing-
arorlof og vinni heima.“
ísland í tölum
Hagtölur mánaðarins hafa að geyma ítarlegar tölfræði-
upplýsingar um íslenska hagkerfið.
Reglulega birtast upplýsingar
um m.a.:
Peningamál
Greiðslujöfnuð
Ríkisfjármál
Utanríkisviðskipti
Framleiðslu
Fjárfestingu
Atvinnutekjur
,6d
8.288
1981
.910 o
63 1i
ib.Ou
.<%91
^951 1-212 1-4- J U
4 2.855 3.324 - | \
372
2.728
409
3.312
Einnig eru birtar yfirlitsgreinar ^
um efnahagsmálin í Hagtölum mánaðarins. 3.754
Túlkið tölurnar sjálf. Pantið A-753
áskrift að Hagtölum mánaðarins.
Askriftarsíminn er 569 9600.
Hoo S.CJ2
^ ’99,s
4.34b
f 44 1
1 457 301 1 68L | 716 834 1.154 901 957 bi,- 410
1.000 887 340 "l.909 1.082 385 1.425 1.098 1.430 1.014 73u 738
8O0
9.015 13.265
437 17.879 19020
333
05
30
386 200
5.198 6.Í0'
1.037 996
1.692 t6
232^
295
ISLANDS
KALKOFNSVEGI1,150 REYKJAVÍK, SÍMI 569 9600