19. júní


19. júní - 19.06.1996, Síða 46

19. júní - 19.06.1996, Síða 46
Vi ðtaI „Þá sæti ég enn og hugsaði - ef ég hefði nú bara stokkið!" framhald af bls. 43 Eg virti fyrir mér fólkið sem býr í fallhlífa- kommúnunum, þar var einn sem gaf út frétta- bréf og græddi á því, annar sem saumaði flug- dreka og græddi á því, einn sem var listamaður og seldi styttur. Fólk var að gera eitthvað, nýta kunnáttu sína til að búa til eitthvað og selja. Svo ég settist niður og hugsaði: -Nú er ég komin með mastersgráðu í byggingarverkfræði, með þessa og þessa reynslu, hvað get ég gert? -Ég er búin að leggja ansi mikið á mig í sambandi við rústabjörgun, hef kynnt mér þessi mál hér í Bandaríkjunum, og veit að ég þekki þau mjög vel. Hvernig get ég nýtt þessa þekkingu? Það endaði á því að ég skrifaði kennslubók um rústabjörgun fyrir Landsbjörgu og kom einnig heim og hélt námskeið bæði fyrir verkfræð- ingafélagið og björgunarsveitirnar - og það voru einu árstekjurnar það árið. Þetta var mjög þroskandi tímabil. Maður lærði að þekkja sjálfan sig og það sem maður vill fá út úr lífinu. -Fann hvað það er að vera blankur og ná svo að skapa sér eitthvað. Ég var alveg ofsalega blönk og hef aldrei upplifað það hvorki fyrr né síðar og geri það vonandi aldrei aftur að vera svona blönk. Enn þann dag í dag er ég þakklát fyrir það að fá að borða því ég veit hvað það er að eiga ekki pening fyrir mat. Allir peningarnir sem ég þénaði eða fékk að láni fóru í fallhlífarstökkið. Það er reyndar ekki svo dýrt eftir að maður hefur komið sér upp öll- um búnaði en það kostar auðvitað að leigja og lifa, jafnvel þótt maður búi bara í hjólhýsi. Þetta fólk er oft mjög blankt. En mér leið mjög vel þarna. Þetta er alveg yndislegt samfélag, fólkið er gott hvert við annað og ekki í neinu lífsgæða- kapphlaupi. Lífið gengur út á fallhlífarstökk eða einhvers konar loftíþróttir, svifdrekaflug til dæmis. Hvers vegna fullhlífarstökk, hvað er það sem fólkfær út úr því? „Það er eiginlega ekki hægt að lýsa því. Maður verður bara að upplifa það. Það eru allir fallhlífarstökkvarar sammála um að þetta er ólýsanlegt. Spennan hverfur ekki þótt maður hafi stokkið oft því það er markmið með hverju stökki. Upphaflega er takmarkið bara að stökkva út úr flugvél. Það er heilmikið mál. Síðan fer maður að stökkva með öðrum og mynda munst- ur sem eru ákveðin fyrirfram og þá verður mað- ur að standa sig. Þá þarf maður að geta flogið; afturábak, áfram, til hliðar og í hringi. Þetta get- ur verið mjög flókið því allir þurfa að falla jafn- hratt. Það skiptir til dæmis miklu máli hvert maður horfir. Slys eru sjaldgæf enda er búnaðurinn orð- inn mjög öruggur. En það er eins og með bílslys- in, mörg slys verða vegna hluta sem reyndur stökkvari - eða bílstjóri, myndi aldrei gera.“ En hvað svo, þú ert búin að vera ífallhlífar- stökki og skrifa bók... „I lok árs 1993 ákvað ég að fara heim og var með ákveðin plön í maganum. I vikunni áður en ég fór heim bauð EQE í San Fransiskó mér vinnu. En þá var ég orðin svo spennt að fara heim að ég sagði nei í þriðja skiptið - og fór heim. Svo í janúar 1994 varð jarðskjálftinn mikli í Los Angeles og þeir hringdu í fjórða skiptið og buðu mér vinnu. Nú var það skrifstof- an í Los Angeles og vinnan fólst í að rannsaka áhrif jarðskjálfta á byggð fyrir almannavarnir í Kalíforníu, og þá sérstaklega þessa jarðskjálfta, sem mér fannst mjög spennandi starf. Mér leist svo vel á það að ég breytti plönunum enn einu sinni og flutti aftur út á LA svæðið. Meðan ég var að bíða eftir atvinnuleyfinu kláraði ég bók- ina. Núna er ég að þýða hana - svona þegar ég hef tíma til - yfir á ensku því margir hafa hvatt mig til að gefa hana út í Bandaríkjunum. Þar er ekki til nein kennslubók fyrir almennan mark- að. Það er galli, ef hægt er að orða það svo, að þessi slys eru mjög fá, og enn þá sjaldgæfara að þau verði tvisvar á sama stað, því safnast reynsl- an og kunnáttan mjög hægt. Þess vegna verða þeir sem öðlast reynsluna að koma henni áfram. Ég hafði ráðgert að vera á þessu svæði í fimm ár, en eftir tvö ár losnaði starf fram- kvæmdastjóra Almannavarna ríkisins, ég sótti um stöðuna og fékk hana - og enn á ný breytti mínum plönum. A þessu tímabili sótti ég ráðstefnur, nám- skeið, starfaði í bandarískum björgunarsveitum og kynntist mönnum sem eru mjög framarlega í almannavarnainálum, sérstaklega í rústabjörg- un, og reyndi að læra af þeim. Nú hefur þetta snúist við, nú er það ég sem er beðin um að halda fyrirlestra og námskeið í Bandaríkjum og víðar.“ Getum lært margt af reynslu annarra I hverju felst starffram- kvæmdastjóra Almanna- varna? „Almannavarnir eiga að veita forystu, í málum sem varða náttúruhamfarir og slys og svo stríðsvá. Mannafli Al- mannavarna ríkisins er lítill, fjórar og hálf staða sem stend- ur, en starfið gengur fyrst og fremst út á að samræma störf annarra, t.d. að tryggja sam- ræmt neyðarskipulag í land- inu. I hverju kjördæmi lands- ins er sérstök almannavarna- nefnd, ef eitthvað gerist í bæj- arfélaginu eru hún kölluð til ábyrgðar og ef nefndin ræður ekki við atburðina þarf að kalla til Almannavarnir ríkisins sem skipuleggja frekari aðgerðir. Undir hatt Al- mannavarna eiga allir björgunaraðilar að sam- einast. Almannavarnir sjá um þjálfun á yfir- mönnum en samtök björgunarsveitanna sjá uin þjálfun undirmanna og eru með samning við Almannavarnir um þjálfunarmálin, og störf björgunarsveita í útkalli. I mörg ár sat ég hinu megin við borðið þegar ég starfaði fyrir hjálpar- sveitirnar. En er eilthvað sérstakt sem þú ætlar að vinna að? „Já það er margt sem ég ætla að vinna að. Það er eðlilegt að með nýju fólki komi breyting- ar. Hins vegar tel ég rétt að taka öllu með ró og fara ekki af stað með þær fyrr en að vel athug- uðu máli. Þess vegna hef ég einsett mér að fara ekki af stað með breytingar, nó að ræða þær op- 44 19 .jÚní RIT KVENRÉTTINDAFÉLAGS (SLANDS
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

19. júní

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.