19. júní


19. júní - 19.06.1996, Side 50

19. júní - 19.06.1996, Side 50
Erótík í listinni eda s t ? Gunnar J. Árnason. Myndir eftir Egon Schiele, frá 1910. Listamenn eru alltaf að fara yfir mörkin. Öll nútímalist frá því um miðja nítjándu öld hefur einkennst af því að lista- menn hafa verið að víkka út landamæri listarinnar, oft við lítinn fögnuð sam- tímamanna. En eru þá eng- in takmörk fyrir því sem listamenn geta leyft sér? Eitt af því sem hefur alltaf vakið deilur er hversu langt myndlistarmenn hafa gengið í því að fjalla um nekt og kynlíf í myndlist sinni. A undanförnum árum hafa vaknað hatrammar deilur um nekt og kynferð- islegt myndefni í myndlist, sem jafnvel hafa leitt til málaferla. Frægasta dæmið er líklega Mynd frá Egyptalandi frá því áriö 1000 fyrir Krist. málaferli sem spunnust um farandsýningu á ljósmyndaverkum bandaríska ljósmyndarans Robert Mapplethorpes í Bandaríkjunum. Einn safnstjóranna sem hýsti sýninguna var dreginn fyrir rétt, ásakaður fyrir að misnota opinbert fé til að breiða út klám. Svipaðar deilur hafa aftur blossað upp í Bandaríkjunum, nú í sambandi við Internetið margumtalaða, í tilefni af því að þingið samþykkti lagaákvæði, sem gerði það að refsiverðu athæfi að dreifa klámfengnu efni á tölvunetum, sem varðar sektum allt að 250.000 dollurum (hátt í sautján milljónir króna) og tveggja ára fangelsi. Þannig að hvar eigi að draga mörkin milli kláms og erótíkur er ekki aðeins innantóm akademísk spurning tepranna. Nú standa lögfræðingar og dómarar, enn á ný, ekki síður en listamenn og listfræð- ingar, frammi fyrir þeim vanda að greina milli erótíkur og kláms, og hvort list og klám útilok- aði hvort annað. Það var einmitt ein af megin- röksemdum verjenda í málinu, sem minnst var 48 19.jÚní RIT KVENRÉTTINDAFÉLAGS (SLANDS

x

19. júní

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.