19. júní


19. júní - 19.06.1996, Síða 52

19. júní - 19.06.1996, Síða 52
framhald af bls. 49 Erótík í listinni Venus að hugga ástina eftir Francois Boucher frá 1751. Sagt er aö Madame de Pompidour hafi setið fyrir og myndin hangið í svefnherbergi Lúðvíks 15. svið miklar andstæður. Allt frá hinu göfuga og háleita til hins klúra og grófa. En það er ekki þar með sagt að ‘hinir siðfáguðu' skemmtu sér ekki einnig í návist Kúpids, eins og sögur Boccacio og mynd Agostino Caracci, ‘Satír í samförum við nymfu’, frá síðari hluta sextándu aldar bera með sér. En menn nutu slíkra hluta bak við lok- aðar dyr og í fámennum félagsskap. Sögur herma að til séu herbergi í vistarverum Páfans í Vatíkaninu, með veggmyndum máluðum af Raf- ael, sem haldið er tryggilega leyndum, því efni þeirra þykir ekki alveg samrýmast heilagleika embættisins, og að sögn hefur einungis einum listfræðingi á þessari öld verið leyft að skyggn- ast þar inn fyrir dyr. Klámiðnaðurinn heldur inn- reið sína En þetta telst varla klám í okkar augum. Hið eiginlega klám, eins og við þekkjum það, kom ekki fram á sjónarsviðið fyrr en með tilkomu ljósmyndatækninnar á fyrri hluta nítjándu ald- ar, eða réttara sagt um miðja öldina þegar fund- in var leið til að prenta ljósmyndir á pappír og ljósmyndaiðnaðurinn varð til. Ljósmyndir gerðu tvennt. I þeim sáu menn ekki aðeins nekt heldur einnig nakta líkama tiltekina einstak- linga. Ljósmyndin gaf tilfinningu fyrir því að sjá hlutina eins og þeir eru, en ekki aðeins mynd þeirra eins og þeim er lýst og túlkaðir af lista- mönnum. I öðru lagi þá var hægt að prenta ljós- myndir í ótölulegum fjölda eintaka. Þar með varð klámiðnaðurinn til, nánast um leið. Pornógrafía er nítjándualdarorð, dregið af gríska orðinu pornoi fyrir skækju eða vændis- konu. Pornógrafía gæti þá þýtt portkonuskrif, í niðrandi merkingu um klámfengið ritmál. Það má því skilgreina pornógrafíu, eða klám, sem nokkurs konar bókmenntagrein eða myndgerð Mynd eftir Thomas Rowlandson frá 1810. sem hefur að geyma mjög opinskátt kynferðis- legt efni, í þeim tilgangi að veita kynferðislega örvun. Slíkt klám er yfirleitt talið klúrt, gróft og jafnvel ofbeldiskennt. Fókusinn er fyrst og fremst á kynfæri og kynferðislegar athafnir af öllu tagi. Hér skilja leiðir með hefðbundnum listmiðlum eins og málverki, grafík og teikningu. Klámið hefur verið bundið við ljósmyndir og aðra skylda miðla eins og kvikmyndir. Til marks um það er að allar þær deilur sem sprottið hafa upp á síðkastið varða listamenn sem nota ljós- myndir. Auk Mapplethorpes má nefna Andres Serano, Jock Sturges, Sally Mann og Joel Peter Witkin. En myndir eftir tvö þau síðastnefndu hafa prýtt veggi kaffihússins Mokka. Klámið hefur verið gagnrýnt úr tveimur átt- um. Annars vegar af íhaldsömum væng þeirra sem vilja viðhalda velsæmi og vernda fjölskyld- una og sjá í klámi sorann úr ræsinu sem er gróðrarstía illra afla í samfélaginu. (Þannig hafa íhaldsamir þingmenn á Bandríkjaþingi úthróp- að klám í myndlist í því skyni að fá ailan opin- beran stuðning við listir felldan niður, undir því yfirskini að listalífið sé samsafn perverta og and-amerískra ónytjunga.) Hins vegar af frjáls- lyndum væng þeirra sem líta á klámið sem dæmigert fyrir kúgun kvenna og þjóðskipulag á 50 19 .jÚní RIT KVENRÉTTINDAFÉLAGS ÍSLANDS
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

19. júní

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.