19. júní - 19.06.1996, Page 64
Kynferðisleg áreitni
framhald af bls. 61
af meiri alvöru en hún
hefur gert hingað til.
Samtök opinberra starfs-
manna í Kanada tóku þegar
1988 þessi mál föstum tökum
gerðu samþykkt sem skilgreindi kyn-
ferðislega áreitni sem vandamál sem verka-
lýðhreyfingin yrði að vinna gegn. Islensk verka-
lýðhreyfing er að taka við sér og eru þegar skýr
dæmi til um að það munar um hana þegar hún
leggur málinu lið.
Ahrif eða afleiðingar kynferðislegrar áreitni
geta verið margs konar. T.d. getur hún haft bein
áhrif á möguleika viðkomandi fórnarlambs til
stöðuhækkunar eða launahækkana, þ.e. sá sem
„áreitir" er í þannig stöðu að hann getur haft slík
áhrif. Einstaklingur/ar geta skapað þannig al-
mennt óvinsamlegt vinnuumhverfi sem gerir
það að verkum að einhver ein konan þrífst illa á
vinnustaðnum og hættir. Erlendar rannsóknir
benda til að konur í óhefðbundnum störfum
verði oftar „fórnarlömb“ slíkrar áreitni. Því mið-
ur er ekkert hægt að segja til um hvaða niður-
stöður við fáum úr rannsókn okkar en þær ættu
að liggja fyrir með haustinu. Þangað til verðum
við að styðjast við erlenda þekkingu og eigið
hyggjuvit. Þegar ég ræði við konur sem leita til
mín eftir ráðum hef ég m.a. gefið þeim eftirfar-
andi lista. Markmið hans er að gera áreitnina
sýnilega og það sem að mínu mati er langmikil-
vægast: að leita ekki að sök hjá sjálfri sér.
Hvað er til ráða?
hættu að leyna því fyrir samstarfsfólki,
ekki kenna sjálfri þér um,
lýstu nákvæmlega því sem gerist hverju
sinni,
fylgstu meö hvort þaö veröa einhverjar
breytingar á verkefnum þínum,
kannaðu hvort einhver vinnufélaga þinna
hefur oröið fyrir álíka áreitni,
ræddu við hann um máliö.
fáöu stuöning vinnufélaga - eru þeir til-
búnir til aö „vitna“,
haltu því fram að áreitnin sé vandamál er
varðar alla á vinnustaðnum,
ræddu af hreinskilni við trúnaöarmann,
reyndu ekki að standa ein í stríöi viö sam-
starfsmann eða yfirmann þinn,
láttu alla vita af því hver er hinn „syndugi".
leggið
miðjuna
á minnið
* *
\V\RE VFILL/
4-8 farþega
og hjólastólabílar
þú rœður ferðinni
62 19 .jÚtlí RIT KVENRÉTTINDASAMBANDS ÍSLANDS