19. júní - 19.06.1996, Síða 75
múslimaríkja annars vegar og annarra ríkja
hins vegar. Hinir síðarnefndu töldu sig hafa
áorkað meiru en björtustu vonir stóðu til í upp-
hafi, en tíminn einn leiðir í ljós áhrif Beijing
ráðstefnunnar á stöðu kvenna í framtíðinni.
Gertrude Mongella, framkvæmdastjóri
kvennaráðstefnunnar, kom hingað til lands í
hyrjun sumars en Kvenréttindafélag íslands
stóð að fundi þar sem hún gerði grein fyrir ráð-
stefnunni og svaraði gagnrýni sem fram hafði
komið á kínversk stjórnvöld fyrir að halda ráð-
stefnu óháðra félagasamtaka í mikilli fjarlægð
frá opinberu ráðstefnunni. Að auki svaraði
hún því hvers vegna ráðstefnan væri haldin í
Kína, þar sem mannréttindi kvenna þykja ekki
í hávegum höfð. Benti Mongella á að löngu
hafi verið ákveðið að næsta ráðstefna SÞ í þess-
um dúr yrði haldin í Asíu og Kína hafi orðið
fyrir valinu á sínurn tíma, ekki síst með tilliti
til þess að það gæti ef til vill bætt stöðu kín-
verskra kvenna.
Ráðstefna óháðra félagasamtaka var haldin í
um það bil klukkustundar akstursfjarlægð frá
Beijing, í Huairou. Fulltrúar KRFÍ á ráðstefn-
unni voru Bryndís Hlöðverdsdóttir og Valgerð-
ur K. Jónsdóttir.
Hallveigarstaðir
I kjölfar framkvæmda utanhúss á Hallveig-
urstöðum hefur félagið frá og með áramótum
1995/1996 misst arðgreiðslur vegna hússins
annan hvern mánuð, en önnur hver greiðsla til
félaganna er nú notuð til að standa straum af
afborgunum af lánum er tekin voru vegna
framkvæmdanna. Þetta hefur veruleg áhrif á
rekstur KRFI en greiðslurnar höfðu dugað til að
greiða mánaðarlaun starfsmanns. Þetta hefur
skapað aukinn þrýsting á að húsið verði selt og
á síðasta ári ákvað hússtjórn að fela ráðgjafar-
fyrirtæki nokkru að meta möguleika á nýtingu
hússins í framtíðinni með tilliti til leigu eða
sölu. Skýrsla kom frá fyrirtækinu snemma á
þessu ári og er þar stillt upp nokkrum kostum
fyrir félögin sem eiga húsið. Sá möguleiki sem
hvað mesta athygli hefur vakið er sala hússins
að undanskildri hliðarbyggingunni, sem yrði
áfram í eigu KRFÍ, KÍ og BKR. Myndu félögin
nýta þann hluta hússins fyrir eigin starfsemi.
Ekki hefur ákvörðun verið tekin um þetta enn-
þá, en fyrir stjórn hússins liggur að móta sam-
eiginlega stefnu félaganna þriggja um það
hvernig framtíð hússins verði. KRFÍ er eina fé-
lagið sem hefur fyrirliggjandi heimild til sölu,
en hin félögin tvö þurfa að fá samþykki til að
unnt só að selja húsið. Nú þegar hefur frést um
mögulega sölu hússins og mögulegir kaupend-
ur hafa haft samband.
Landsfundur verður haldinn 27.-28. sept-
ember í haust og hefur stjórnin lagt til að hann
verði haldinn í Hafnarfirði. Meginumfjöllunar-
efni hans verður skv. ákvörðun stjórnar mann-
réttindi stúlkubarna og Cedaw-samningurinn.
Utgáfumál
19. júní
Tímarit félagsins, 19. júní, kom út þrisvar
sinnum á árinu.
Ritstjóri var Valgerður K. Jónsdóttir og í rit-
nefnd voru Steinunn Jóhannesdóttir, Sigrún
Sigurðardóttir, Bryndís Kristjánsdóttir, Inga
Dóra Sigfúsdóttir og Kristín Leifsdóttir. Und-
anfarin þrjú ár hefur blaðið komið út þrisvar
sinnum á ári. Fyrstu tvö árin var í gildi sam-
komulag við Jafnréttisráð um samstarf blaðsins
og Vogarinnar - fréttabréfs ráðsins. Samning-
urinn rann út í byrjun síðasta árs og ákvað Jafn-
réttisráð að framlengja hann ekki og gefur nú út
sérstakt fréttabréf. I kjölfarið varð það félaginu
fjárhagslega ofviða að gefa blaðið út þrisvar
sinnum á ári og hefur stjórnin því ákveðið að
gefa einungis út eitt tölublað á þessu ári sem
kemur út 19. júní. Ný ritnefnd hefur tekið til
starfa en í henni eiga sæti Steinunn Jóhannes-
dóttir, Inga Dóra Sigfúsdóttir, Kolfinna Bald-
vinsdóttir, Brynhildur Þórarinsdóttir, Kamilla
Rún Jóhannsdóttir og Stefanía Oskarsdóttir.
Ritstjóri er Valgerður K. Jónsdóttir.
Fréttabréf
Á síðastliðnu starfsári voru gefin út 4
fréttabréf en þau hafa einkum verið notuð til að
koma á framfæri upplýsingum um starf félags-
ins, fundi og annað. Ábyrgðamaður frétta-
bréfsins hefur verið Valgerður K. Jónsdóttir. I
tengslum við breytt fyrirkomulag á útgáfu
19.júní, hefur stjórn félagsins ákveðið að
breyta fyrirkomulagi fréttabréfsins. Það mun á
næstunni koma út í breyttri mynd, stærra broti
og með nýju sniði. Undirbúningur undir
breytta útgáfu fréttabréfsins er nú á lokastigi.
Gróðursetningarferð í Heið-
mörk
Þann 4. júlí fóru 8 vaskar konur í lundinn
okkar í Heiðmörk og gróðursettu tré, en segja
má að lundurinn hafi tekið stakkaskiptum á
síðustu árum. 170 plöntum var komið niður í
sumar í haugarigningu og slagveðri, en enn eig-
um við nokkuð verk fyrir höndum í rofabörð-
unum.
Skuggaskýrsla um
Cedaw-samninginn
Félagið vann skuggaskýrslu um samning
Sameinuðu þjóðanna um afnám allrar mis-
mununar gegn konum en íslensk stjórnvöld
framhald á bls. 74
73 19.jÚní RIT KVENRÉTTINDAFÉLAGS ÍSLANDS