19. júní


19. júní - 19.06.2002, Page 12

19. júní - 19.06.2002, Page 12
Er blæjunotkun mibausturlenskra kvenna sama fyrirbæri og sexíheit kvenna á Vest- urlöndum? Sitt hvor hliöin á sömu mynt? Eftir: Guðrúnu M. Guðmundsdóttur og Sigurð Jónas Eysteinsson Samanburður af því tagi fram kemur í fyrir- sögninni hljómar e.t.v. fjarstæðukenndur í fyrstu, en að okkar mati samt þess virði að skoða eilítið nánar. Til að fyrirbyggja misskilning er ekki ætlun okkar að bera saman formleg réttindi kvenna (t.d. hin lagalegu) á þessum mismunandi slóðum, heldur frekar að rýna undir yfirborðið og sjá hvernig menningin mótar raunverulega stöðu kvenna. Það vildi svo til í vetur á sama tíma og um- ræður um stöðu kvenna í Miðaustur- löndum voru hvað háværastar, að dóttir annars höfundar þessarar greinar varð að unglingi nánast á einni nóttu. Þessi hamskipti fólu í sér að litli ný-unglingurinn fór að krefjast þess að fá að klæðast magabolum, mjaðmabuxum, g- strengs nærbuxum og mála sig í anda nýjustu Popp-tíví tísku. Þessi skörpu umskipti ollu okkur þungum heilabrotum og voru jafnframt kveikjan að eftirfarandi vangaveltum. Myndbirting undirgefni Til að geta borið saman jafn ólík fyrirbæri og blæj- una og sexíheit er vert að byrja á því að velta fyr- ir sér hver algeng skýring kvenna frá Mið-Austur- löndum er á notkun blæjunnar. Eftir því sem við komumst næst er blæjan tákn virðingar og hrein- leika þeirrar konu sem hana ber. Algengt er að stelpur byrji að bera hana við kynþroska og verða þannig strax eða smám saman gjaldgengar á hjú- skaparmarkaðinum. Með því að bera blæju hylja þær það fallegasta sem þær eiga, til þess að varóveita það sem tilvonandi eiginmanni er einum ætlað að sjá. Á þennan augljósa máta játa konur skammlaust undirgefni sína við karlkynið og hylja andlit sitt og/eða hár til að þóknast tilvonandi eig- inmanni, fjölskyldu og samfélaginu í heild. Konur á Vesturlöndum hafa frelsi til þess að klæða sig eins og þeim þóknast, en hvers vegna skyldu þær velja sér það að vera sexí í klæða- burði? Algengt er að stelpur byrji að hafa sig til um kynþroska. Það felst oft í ýmsum aðgerðum sem undirstrika og ýkja kynþokka og fegurð, t.d. með því að mála sig, klæðast push-up brjósta- höldum og/eða hælaháum skóm. Ætla má að að- gerðir af þessu tagi geri þær samkeppnishæfari í baráttunni um eftirsóttustu strákana. Má greina hér vissa hliðstæðu? Okkur sýnist að á meðan á- herslan hjá Miðausturlenskum konum virðist vera að sýna sem minnst af líkama sínum til að ganga sem mest í augun á tilvonandi maka sé því öfugt farið hjá Vesturlandakonum þar sem þær virðast leggja kapp á að sýna sem mest af líkama sínum með tilheyr- andi yndisaukandi aðgerðum einmitt til að kærasti eða eigin- maður megi vera stoltur af. í báðum tilvikum lítur út fyrir að hegðun og smekkur kvenna séu á forsendum karla og megin drifkraftur menningarmótunar kvenna á báðum svæðum sé svar við því sem karlmenn í þessum sam- félögum telja eftirsóknarverða hegðun og framkomu. Getur verið að hér sé um að ræða andhverfa myndbirtingu undirgefni kvenna gagn- vart karlkyninu? En þær hafa það miklu verra! Samræður kvenna frá þessum tveimur ólíku menn- ingarsvæðum virðast okkur oft einkennast af karpi um hvor hópanna sé betur eða verr settur. Konur á Vesturlöndum „bisast" sífellt við að koma múslim- skum kynsystrum sínum í skilning um hve kúgaðar þær eru og nefna notkun blæjunnar oft í því sam- hengi. Múslimskar konur varpa þá boltanum um- svifalaust til baka og benda á niðurlæginguna sem felst í því að konur á Vesturlöndum skuli samþykkja að vera sýningargripir og nefna þá oft fegurðarsam- keppnir og súludans máli sínu til stuðnings. Við höldum að ágreiningurinn stafi af því, að fólk er gjarnan blint á eigin tilveru, nema þegar henni er stillt andspænis framandi menningu. Hvað er þá menning? Menning er skilgreind sem ferli sem stöðugt skapar þá tilveru sem við lifum og hrærumst í. Henni er viðhaldið af normum sem samfélagsþegnarnir samþykkja og staðfesta í 12

x

19. júní

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.