19. júní - 19.06.2002, Blaðsíða 70
ekki er unnt að taka fé af almennum rekstri til að
kosta þau. Þessi viðleitni hefur nú þegar skilað
nokkrum árangri, en betur má ef duga skal. Með
áframhaldandi vinnu og aðhaldsaðgerðum á
þessu sviði er það von undirritaðrar að félagið
verði orðiö sjálfbært í rekstri í lok næsta árs,
þannig að meira svigrúm skapist fyrir verkefni í
þágu þess málstaðar sem félagið vinnur að.
Gífurleg vinna hefur verið sett í breytingu á útleigu
Hallveigarstaða þannig að þessi sameign félag-
anna þriggja geti aflaó eigendum sínum frekari
tekna. Þá hefur töluverðum fjármunum verið var-
ið í tímabært viðhald undir stjórn húsnefndar, og
húsið þannig gert vænlegra til útleigu. Nú eru
stærstu leigutakar á Hallveigarstöðum, Kvik-
myndasjóður og Sendiráð Kanada og hefur nán-
ast hver fermeter af húsinu verið leigður út, utan
hluta af kjallara. Það eru því allar líkur til að Hall-
veigarstaðir geti farið að skila eigendum sínum
tekjum á næsta ári, eins og vera ber, án þess að
gengið verið á fjármuni sem verja þarf til viðhalds
hússins. Þessi jákvæða niðurstaða er fyrst og
fremst að þakka miklu og óeigingjörnu starfi stall-
systra minna í húsnefnd Hallveigarstaða, þeirra
Helgu Guðmundsdóttur, forseta Kvenfélagasam-
bands íslands og Hildar G. Eyþórsdóttur, for-
manns Bandalags kvenna í Reykjavík, sem nú fer
með framkvæmdastjórn hússins og vil ég nota
þetta tækifæri til að þakka þeim fyrir. Það er
bæði fyrir mig persónulega vegna sérstaklega
góðs og ánægjuríks samstarfs og fyrir Kvenrétt-
indafélagið sem mun njóta góðs af.
95 ára afmæli Kvenréttindafélags íslands.
Eins og félagsmönnum er kunnugt þá varð KRFÍ
95 ára þann 27. janúar sl. og hefur stjórn félags-
ins ákveðið að halda upp á þau tímamót með
margvíslegum hætti á þessu ári. Fyrst má þar
nefna janúarráðstefnu félagsins sem helguð var
afmælinu að hluta, þá verður boðið í afmæliskaffi
þann 19. júní og svo stendur til að minnast af-
mælisins einnig þann 24. október, en það er enn
á undirbúningsstigi. Einnig verður lögð áhersla á
ráðstefnuhald, málþing og fundi á afmælisárinu
og er félagsmönnum bent á að fylgjast vel með
auglýsingum um það.
Hér að framan hef ég leitast við að telja það
helsta úr starfi Kvenréttindafélagsins 2001-2002,
en þó er margt enn ótalið. Félagió fékk á þessu
ári marga góða gesti sem vildu kynna sér starf-
semi félagsins, bæði erlenda og íslenska, og vil
ég nota þetta tækifæri til að þakka þeim fyrir
komuna. Þá er það sífellt að aukast að haft sé
samband á skrifstofuna með tölvupóstsending-
um og er það mikill kostur, hjá félagi sem getur
ekki haft starfsmann allan daginn til að svara fyr-
irspurnum í síma.
Ég vil að lokum þakka öllum þeim sem lagt hafa
félaginu lið á undanförnu ári og sýnt áhuga á
starfsemi þess. Það er mat okkar sem sitjum í
stjórn félagsins að enn séu ærin verk fyrir hönd-
um til að ná jafnrétti kvenna og karla því rík þörf
fyrir áframhaldandi gott starf Kvenréttindafélags
íslands. □
Þann 6. maí 2002
Þorbjörg Inga Jónsdóttir
70