19. júní - 19.06.2002, Blaðsíða 62
Framlag kvenna gerir
gæfumuninn
Ávarp á alþjóðlegum baráttudegi kvenna 8. mars 2002
Eftir: Þorbjörgu I. Jónsdóttur \
Alþjóðlegur baráttudagur kvenna 8. mars gefur
sérstakt tilefni til að leggja áherslu á framlag
kvenna á vinnumarkaði til framþróunar og hag-
sældar í samfélaginu. Um leið er mikilvægt að
benda á kynjamisréttið sem enn viðgengst og á-
rétta kröfuna um launajafnrétti á vinnumarkaði og
nauðsynlegar úrbætur á starfsskilyrðum kvenna
og launafólks almennt.
Aukning þjóðartekna og efnahagslegar framfar-
ir á íslandi síðustu áratugi verða ekki skýrð nema
með útrás kvenna á vinnumarkaðinn síðustu ára-
tugi og mikilvægu framlagi þeirra á öllum sviðum
atvinnulífsins. Hvergi í Evrópu er jafn hátt hlutfall
kvenna á vinnumarkaði og hvergi skiptir framlag
kvenna jafn miklu fyrir þjóðarhag. Virk þátttaka ís-
lenskra kvenna á vinnumarkaði hefur skipað ís-
landi í röð ríkustu þjóða heims. Framlag kvenna á
vinnumarkaði er jafnframt forsenda fyrir áfram-
haldandi sókn og framtíðarvelferð íslensku þjóð-
arinnar.
Margt hefur áunnist í jafnréttisbaráttunni á síð-
ustu árum og áratugum. Mikilvægi vinnuframlags
kvenna fyrir samfélagið er óumdeilt. Konur hafa
sótt fram á stöðugt fleiri sviðum samfélagsins,
með aukinni menntun og úti á vinnumarkaðnum.
Þrátt fyrir mikilvæga sigra eru mörg mikilvæg
verkefni enn óleyst.
Kynbundið launamisrétti er einkenni á íslensk-
um vinnumarkaði. Konur njóta mun lakari kjara en
karlar, þar sem verulegur hluti launamunarins
verður eingöngu skýrður með misrétti kynjanna,
óháð félagslegum þáttum eins og ólíku vinnu-
framlagi, mismunandi verðmæti vinnunnar og
öðrum ástæðum.
Launamisrétti kynjanna er svartur blettur á ís-
lensku samfélagi sem verður að uppræta. Það er
krafa um grundvallarmannréttindi. Jafnréttislögin
eru mikilvægt verkfæri í þessari baráttu. Þau setja
skýr markmið um launajafnrétti. Þar er jafnframt
að finna tæki í baráttunni gegn launamisrétti og
kynjamisrétti á vinnumarkaði almennt. Fylgja
verður fast eftir skyldu fyrirtækja til að gera jafn-
réttisáætlanir og síðan að þeim sé hrint í fram-
kvæmd.
Langur vinnutími og óhóflegt álag er annað ein-
kenni á vinnumarkaði og íslensku samfélagi. Tvö-
falt hlutverk og skyldur, á vinnumarkaði og heim-
ili, skapa oft andlegt og líkamlegt álag sem ekki er
62