19. júní


19. júní - 19.06.2002, Side 20

19. júní - 19.06.2002, Side 20
Tvöföld skilaboö glanstímarita Eftir: Bryndísi Sveinsdóttur bókmenntafræðing. Hvaða skilaboð felast í glanstímaritum? Boða þau kvenfrelsi eða kvenímynd sem er afskap- lega ósjálfstæð, óánægð og óörugg með útlit sitt? Ágæti glanstímarita fyrir konur á borð við Cosmopolitan er umdeilt og vilja sumir meina að þau séu gamaldags, fáfengileg og grunn og að í þeim sé talað niður til kvenna. Vissulega er rétt að í þeim er endalaust verið að gefa konum fyrirmæli um hvernig þær eiga að vera, skilaboðin eru oft í- haldssöm og gamaldags og auglýsingamennskan er jafnan yfirgengileg. í þeim má þó jafnframt finna upplýsandi greinar um ýmis málefni, þar heyrast raddir ólíkra kvenna og oft fáum við í þeim kvenleg sjónarhorn sem í öðrum fjölmiðlum eru hunsuð. Enda er það staðreynd að fjöldi kvenna sækir í þau svo eitthvað hljóta þau að hafa sér til ágætis. Sjálfri finnst mér fátt notalegra en að hreiðra um mig í sófanum með nýjasta Cosmopolitan eða Maríe Claire en um leið verð ég stundum agndofa yfir hversu gamaldags og karlrembuleg tímaritin geta verið. Fræðikonan Naomi Wolf bendir einmitt á að margar konur eigi í eins konar ástar/haturssambandi við kvennablöð vegna þess hve boðskapur þeirra sé þversagnakenndur, hann sé bæði feminískur og í- haldssamur, einfeldninglegur og margbrotinn, draumkenndur og raunsær. Þau boða stundum kvenfrelsi en líka kvenímynd sem er afskaplega ó- sjálfstæð, óánægð og óörugg með útlit sitt. Kynþokkinn liggur í raddblænum Þessi þversagnakenndu skilaboð til kvenna eru alls staðar mjög áberandi í Cosmopolitan. \ janúar-tölu- blaðinu frá 2002 fáum viö til dæmis grein sem ber titilinn „8 leynileg skilaboð um kynlíf sem fá hann til að girnast þig“ og eru þar gefin hin flóknustu ráð til að tæla karlmenn svo lítið beri á t.d. með því að breyta raddblæ hvers orðs: Til eru einföld ráð til að beita röddinni á tælandi hátt sem munu fá hann til að bráðna um leið og þú opnar munninn. í fyrsta lagi ber að athuga að rödd sem alltaf lækkar í lok hverrar setningar hljómar neikvæð og er óaðlaðandi [...] Ástralir tala með hreim þar sem röddin í þeim hækkar í lok hverrar setningar [...] ef þú gerir það öðru hverju, muntu hljóma jákvæðari og virðast áhugaverðari. Þarna á manneskjan að hækka tóntegund radd- arinnar í lok hverrar setningar til að hljóma jákvæð- ari. Þannig virðist hún vera minna ákveðin og þar með kvenlegri. Þá er önnur grein í blaðinu sem heitir „Hinn full- komni munnsvipur, kyssulegar, kynþokkarfullar varir.“ og fjallar um hvernig eigi að öðlast hinar full- komnu varir sem karlmanninum líkar: Spurðu hvaða karímann sem er hvað það er sem vekur þeim löngun til að kyssa konu og þeir munu segja: þrýstnar, kynþokkafullar og mjúkar varir. Fylgdu bara ráðum Cosmo til að öðlast hinn full- komna munnsvip og hann mun fyrren varirreyna að kyssa þig í sama hefti er síðan grein sem ber titilinn „Ertu kamelljón í ástarmálum? - Ef þú ert tilbúin til að breyta útlitinu og persónuleikanum fyrir karlmann- inn í lífi þínu, skaltu hugsa þig tvisvar um - þú reyn- ir of mikið að búa til hið fullkomna par....“ en hún fjallar um hvernig konur eigi að vera sjálfstæðar og ekki að haga lífi sínu eftir þörfum karlmannsins í lífi sínu. „Það er hin ógnvekjandi staða þegar þú ert farin að laga þig að smekk nýja kærastans, móta persónuleika þinn upp á nýtt til að þóknast honum" Hér fær lesandinn í einu og sama blaðinu að vita hvernig hún á að eyða ómældum tíma í að mála varirnar og henni meira að segja ráðlagt að ganga svo langt að reyna að breyta talsmáta sínum til að vera meira aðlaðandi í augum karla. En síðan fær konan líka sterk varnaðarorð um að gæta sín á að leggja sig ekki of mikið fram um að þóknast körl- um! Þetta er aðeins eitt dæmi af fjölmörgum sem hægt væri að nefna sem eru lýsandi fyrir hinn þversagnakennda boðskap í Cosmopolitan. Kenndu mér ad kyssa rétt... Kvennablöð ganga út á að kenna konum að vera 20

x

19. júní

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.