19. júní - 19.06.2002, Qupperneq 33
Konur koma ekki fyrstar upp í hugann þegar
hugsað er um fanga sem afplána refsingu innan
fangelsismúra. Myndin sem kemur upp er því
síður af móður sem þarf að skilja börnin sín eft-
ir í umsjá annarra, jafnvel ókunnugra, meðan
hún afplánar sína refsingu í fangelsi. Það
gleymist nefnilega oft, viljandi eða óviljandi, að
sá sem brýtur af sér á sitt einkalíf, sína fjöl-
skyldu sem var til áður en glæpurinn var fram-
inn. í þessari grein er m.a. varpað Ijósi á það
hvernig búið er að fangelsismálum fyrir þær
konur sem dæmdar eru til fangelsisvistar hér á
landi. Einnig er fjallað um það hvað verði um
börn kvenna í fangelsum.
í dag eru 5 fangelsi á landinu. Hegningarhúsið við
Skólavörðustíg sem tekur á móti flestum föngum
til afplánunar, fangelsið Kópavogsbraut 17, Litla-
Hraun, Kvíabryggja og fangelsið á
Akureyri. Fangar geta svo lokið síðustu mánuð-
um afplánunar hjá Vernd sem er áfangaheimili
sem fangahjálpin Vernd rekur, en fangar geta,að
vissum skilyrðum uppfylltum, fengið að afplána
síðasta hluta refsivistar þar. Þaðan stunda fang-
ar vinnu en greiða fyrir uppihald sitt sjálfir. Þetta
eru yfirleitt 8-9 fangar í einu sem eru að Ijúka af-
plánun og svo 6-7 sem dvelja þar að afplánun
lokinni meðan þeir koma sér af stað út í lífið.
Konur fá að koma á Vernd og virðist hlutfall þeirra
þar vera svipað og í afplánun almennt.
Sumir fangar fá svo að Ijúka afplánun með
svokallaðri samfélagsþjónustu og virðist sem
hlutfall kvenna sem tekur þátt í slíku sé almennt
hærri heldur en hlutfall kvenna í afplánun al-
mennt. Ánægja virðist vera með bæði Vernd og
samfélagsþjónustuna og má segja að í miklum
meirihluta standist fangar þau skilyrði sem þeim
eru sett þar.
Ekki talin þörf á kvennafangelsi
Til að byrja með var engin sérstök aðstaða fyrir
konur sem afplánuðu refsivist. Þær fáu konur
sem dæmdar voru í fangelsi afplánuðu sína refsi-
vist með körlum og voru þær þá vistaðar í hvaða
fangelsi sem var. Upp úr 1980 var hins vegar
stofnuð sérstök kvennadeild í fangelsinu á Akur-
eyri sem var starfrækt í eitt ár. Eftir það og fram
að þeim tíma sem fangelsið að Kópavogsbraut
var opnað voru konur vistaðar á Bitru í Hraun-
gerðishreppi í Árnessýslu, en það er sveitaheimili.
Athygli vekur að í fræðigreinum frá 1978 er ekki
talin þörf á sérstöku kvennafangelsi.
Hinn 27. apríl 1989 var fangelsið við Kópa-
vogsbraut svo stofnað. í dag afplána konur
sína refsivist þar, en í fangelsinu eru 12 fanga-
pláss. Þar sem konur í afplánun eru það fáar,
eða u.þ.b 5-6 í einu, eru þar einnig karlkyns
fangar í afplánun. Um samskipti kynjanna gilda
strangar reglur og er fangelsinu skipt upp í tvo
ganga, annan fyrir karla og hinn fyrir konur.
Dagleg samvera er þó blönduð og reynt að hafa
daglegt líf eins eðlilegt og hægt er. Inn í fang-
elsið eru valdir karlfangar, t.d. ekki menn sem
dæmdir hafa verið fyrir gróf ofbeldisbrot eða
kynferðisbrot. Blöndun kynjanna í fangelsinu
virðist hafa gengið vel og engin sérstök vanda-
mál samhliða því hafa skapast.
Aðstaðan á Kópavogsbraut er öðruvísi en í
flestum öðrum fangelsum landsins. Það má
segja að það sé heimilislegra, enda er gert ráð
fyrir því að konur geti verið með kornabörn sín
með sér í afplánun. Húsnæðið er innréttað
þannig að hægt er að hafa börn þar, t.d. er
hægt að setja handrið fyrir stiga, þar eru leik-
föng, barnastólar, barnarúm og þess háttar.
Engin fjölskyldustefna
í dag er engin skráð opinber fjölskyldustefna hjá
fangelsisyfirvöldum. Þau gera sér engu að síður
grein fyrir því að reyna verður að halda tengslum
fanga við fjölskyldu sína sem mestum, enda seg-
ir það sig sjálft að meiri líkur eru á að fangi nái að
halda sér réttum megin við strikið haldi hann á-
fram tengslum við fjölskyldu sína. Sérstaklega er
gert ráð fyrir að fangi fái heimsóknir frá fjölskyldu
sinni og er skilgreint í reglugerð hvað teljist til fjöl-
skyldu. Á Litla-Hrauni er sérstakt fjölskylduher-
bergi með leikföngum o.þ.h. sem notað er við
heimsóknir. Fangar geta einnig að ákveðnum
skilyrðum uppfylltum og eftir að ákveðinn hluti
refsingar hefur verið afplánaður fengið dagsleyfi
sem geta verið notuð til að heimsækja fjölskyld-
una. Að auki má nefna þann möguleika að fangi
fái leyfi til að gæta sérstakra persónulegra hags-
muna, það hefur m.a. verið notað ef fangi vill ekki
að stálpað barn sjái sig í fangelsi og fær því að
heimsækja það. Þetta þarf þó allt að vera að
vissum skilyrðum uppfylltum, enda má ekki
gleyma því að fanginn er að afplána refsivist.
Ekki má í þessu samhengi líta framhjá því að í
fangelsinu á Kópavogsbraut er gert ráð fyrir því
að konur geti haft ung börn sín hjá sér í afplán-
un. Gert er ráð fyrir þessu í lögum og hafa yfir-
völd yfirleitt miðað við að börnin séu ekki eldri
33