19. júní


19. júní - 19.06.2002, Page 34

19. júní - 19.06.2002, Page 34
en tveggja ára, þ.e. geri sér ekki grein fyrir því aö þau séu í fangelsi. Þetta hefur margsinnis verið gert og hefur reynslan verið góð. Eins hafa barnshafandi konur afplánað refsingu og hafa fangelsisyfirvöld þá séð um að konan fari í mæðraeftirlit. Konan fæðir þá á spítala og fer svo eftir eðlilegan tíma þar aftur í fangelsið með barnið með sér. Þangað kemur svo hjúkrunar- fræðingur til þess að sinna ungbarnaeftirliti. Eins og áður sagði er fangelsið á Kópavogs- braut útbúið með þetta í huga. Ekki margar konur dæmdar til fangelsisvistar Það eru ekki margar konur sem dæmdar eru til af- plánunar fangelsisvistar á hverju ári. Hlutfall kvenna í afplánun hefur verið á bilinu 4,5% til 8% síðan að fangelsismálastofnun hóf að gefa út skýrslur sínar árið 1989. Það er í sjálfu sér ótrú- lega lágt hlutfall og rannsóknarefni í sjálfu sér að komast að því hvernig standi á því að karlmenn skuli „eigna sér“ svo stóran hluta afbrota og fang- elsisdóma. Þetta hlutfall virðist þó vera svipað og á hinum Norðurlöndunum. Merkilegt er að hlutfall stúlkna af því unga fólki sem fremur afbrot en á- kæru er frestað, er mun hærra og fer hækkandi. Þar er hlutfall stúlkna á bilinu 10-34%. Ekki er hægt að sjá af skýrslum fangelsis- málastofnunar fyrir hvaða afbrot konur sitja inni. Telja mun þó að þær sitji langflestar inni fyrir auðgunarbrot sem þær hafa framið til að fjár- magna fíkniefnaneyslu. Hins vegar eru til tölur varðandi mál þar sem ákæru er frestað vegna ungs aldurs og málsbóta, þ.e. beðið er með á- kæru og unga fólkinu gefið tækifæri á að snúa af braut afbrota. Þær stúlkur sem fá ákæru frestað hafa langflestar staðið í skjalafalsi með- an ungu mennirnir eru mest í þjófnuðum, inn- brotum og þess háttar. Reyndar virðist sem að á síðustu árum sé þessi munur á brotum ekki eins afgerandi og sjá má ofbeldisbrot sem varla sáust áður. Einhver breyting virðist því vera á afbrotum kvenna, en það hefur ekki, að því er greinarhöfundi er kunnugt um, verið rannsakað. Þetta lága hlutfall kvenna er ekki það eina sem greinir konur frá körlum í fangelsi. Svo virðist sem þær séu eldri þegar þær eru dæmd- ar til fangelsisvistar. Karlmenn sem koma í af- plánun, þá í fyrsta skipti, eru yngri en konur sem koma í fyrsta skipti til afplánunar. Það lítur út fyrir að konur eigi þá jafnvel lengri brotaferil að baki, en þá í smávægilegri afbrotum og eru þátttakendur án þess að vera hvatamenn eða beinir gerendur. Þessi munur á aldri kynjanna þegar þau koma í afplánun gæti útskýrt það að mjög margar af þeim konum sem koma til af- plánunar eiga börn, en reynslan sýnir að flestar af kvenföngum í afplánun eru mæður. Það er að mati fangelsisyfirvalda á ýmsan hátt erfiðara að hafa konur í fangelsi. Konur virðast taka það enn nærri sér en karlar að sitja inni og þurfa t.d. meira á hjálp sálfræðinga að halda. Að sumu leyti mætti reyndar skýra það með því að þær bera sig frekar eftir slíkri aðstoð fremur en karlmenn. Allavega er hlutfall kvenna sem fær aðstoð sálfræðinga og félagsráðgjafa hærra en hlutfall þeirra almennt í afplánun. Það að þurfa að sitja í fangelsi virðist vera tilfinninga- lega erfiðara og flóknara fyrir konur en karla. Það má að sumu leyti heimfæra upp á að meiri félagsleg stimplun virðist fylgja fangelsisvist kvenna heldur en karla. Skoða má í þessu sam- hengi félagslega stimplun sem fylgir áfengis- sýki, en konur sem fara í meðferð virðast þurfa að yfirstíga meiri og stærri félagslegar hindranir heldur en karlmenn sem fara í meðferð. Þessi stimplun virðist enn meiri ef um mæður er að ræða. Meira virðist vera um árekstra, og geðrænt á- stand er oft á tíðum erfiðara hjá konum. Það verður þó að taka fram að þessi umræða er ekki byggð á tölum enda hefur þetta ekki verið rann- sakað heldur byggt á reynslu og tilfinningu fangelsisyfirvalda. Eitt atriði enn má nefna varðandi mun kynj- anna í afplánun, en það er aigengara að konur fái frestun á afplánun refsivistar. Eins virðast þær fá lengri fresti heldur en karlmenn. Hvað verður um börnin? Margir spyrja sig þeirrar spurningar hvað verði um börn kvenna sem afplána refsivist. Sem bet- ur fer eiga mörg þeirra einhverja aðra að, hitt for- eldrið, afa og ömmur. Það er því miður ekki alltaf þannig. Þær konur sem eru komnar það langt, það djúpt sokknar, að þær hafi framið glæpi sem þær þurfa að svara fyrir með fangelsisvist, eru ekki allar með stóra elskandi fjölskyldu á bak við sig. Oft hafa þær brennt margar brýr að baki sér og jafnvel útilokað sig frá samskiptum við annað fólk, og þá jafnvel búnar að missa forsjá barna sinna í hendur annarra á leið sinni í fangelsi, en eins og áður sagði er fíkniefnaneysla algeng hjá þeim konum sem enda í fangelsi. 34

x

19. júní

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.