19. júní


19. júní - 19.06.2002, Page 36

19. júní - 19.06.2002, Page 36
þess að barnaverndaryfirvöld feli einhverjum fóstur barns þá þarf fósturforeldrið að fara í gegnum úttekt og samþykki yfirvalda sem er mun ítarlegri úttekt en þegar þarnaverndaryfir- völd eru að samþykkja ráðstöfun foreldris. Við ráðstöfun barnaverndarnefndar er geróur samn- ingur við fósturforeldrið og línurnar oft skýrari en þegar foreldri sér um þetta sjálft. Barn get- ur lent hjá sama aðilanum eftir hvorri leið sem er, og jafnvel byrjað þar vegna tilstuðlan foreldris og síðan farið gegnum ferlið hjá barna- verndarnefnd og á endanum er gerður fóstur- samningur milli fósturforeldris og barnaverndar- nefndar. Ef barn á annað foreldri á lífi sem ekki hefur forsjá barnsins flyst forsjáin ekki sjálfkrafa til þess þó að hitt foreldrið sitji í fangelsi. Vilji for- sjárlausa foreldrið fá forsjána verður það að leita til dómstóla eins og í venjulegu forsjár- deilumáli. Það gæti líka orðiö fósturforeldri, t.d. eftir ósk forsjárforeldris í fangelsi, eins furðu- lega og það hljómar. Séu börn í fóstri hafa þau engu að síður um- gengni við foreldri sitt í fangelsi. Þau fá að heimsækja þaó og þess háttar og vera með for- eldrinu í dagsleyfi ef það nýtur slíkra réttinda. Ef um langa afplánun er aö ræða, t.d. 12 mán- uði eða meira geta barnaverndarnefndir svipt foreldri forsjánni og sett barnið í varanlegt fóst- ur. Þetta er þó alltaf metið með tilliti til þarfa og þroska barnsins. Ef um stálpuð börn er að ræða mætti fangelsisdvölin þó vera lengri til þess að það þyldi röskunina. Sem betur fer eru slíkar ráðstafanir mjög sjaldgæfar. Yfirvöld fylgjast með börnum Munur er á kynjunum á þessu sviði, svo mikið er víst og er það vert rannsóknarefni að fara ofan í kjölinn á þessum málum og þá sérstaklega kannski muninn á afbrotum kynjanna. Eins er merkilegt hversu hærra hlutfall kvenna er hjá þeim sem fá frestun á ákæru heldur en hjá þeim sem enda svo í fangelsi. Skyldu konur láta sér slíka viðvörun að kenningu verða eóa fá þær frekar slíka viðvörun heldur en ungir karlmenn? Einnig má velta því fyrir sér eftir þessa athugun hvort að hið félagslega taumhald sé sterkara hjá konum heldur en körlum og því séu afbrotin færri. Skyldi aukið jafnrétti vera farið að hafa á- hrif með þeim hætti að fangelsisdómum fjölgi hjá konum? Það er allavega Ijóst að brot þeirra kvenna sem eru að fremja sín fyrstu brot eru að breytast frá því að vera nánast eingöngu bund- in við skjalafals yfir í að vera ofbeldisbrot, inn- brot og þjófnaðir, en það eru brot sem einungis karlmenn hafa framið hingað til. Það virðist vera tilfinningalega erfiðara fyrir kon- ur að afplána fangelsisvist heldur en karlmenn, en eins og fleira á þessu sviði hefur það ekki verið rannsakað. Börnin hljóta að hafa þar eitthvað að segja og áhyggjur af þeim og vistun þeirra eru sjálfsagt einn af erfiðustu þáttunum við fangelsis- vist. Barnaverndaryfirvöld fylgjast með þörnum einstæðra foreldra þótt ekki sé um formlega þátt- töku þeirra í þessu ferli að ræða. Farið er að ósk- um foreldris varðandi vistun barns svo lengi sem barnaverndaryfirvöld telja ráðstöfun trygga og ekki í andstöðu við þarfir barnsins. Það er svo annað mál að fara út í það mat hvenær ráðstöfun er trygg og hvernig hagsmunir barns verða best tryggðir og verður ekki fjallað um það viðkvæma málefni hér. Það er ekki algengt að konur sitji í fangelsi, og það að fangar afpláni lengri refsingu en eitt ár er heldur ekki algengt, þannig að sem betur fer er ekki oft ástæða til varanlegra aðgerða af hálfu barnaverndaryfirvalda vegna umönnunar barna. Já sem betur fer, enda verður að telja að í hugum margra er ekki hægt að hugsa sér meiri refsingu en að missa barnið sitt til annarra, en það sorglega er að það getur gerst í þessum mála- flokki. □ Heimildir: Skýrstur fangelsismálstofnunar ríkisins 1989- 1999. Hrefna Friðriksdóttir lögfr. Barnaverndarstofu. Munnleg heimild apríl 2002. Guðmundur Gíslason forstöðumaður fangelsis- ins Kópavogsbraut 17. Munnleg heimild maí 2002.

x

19. júní

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.