19. júní - 19.06.2002, Page 42
Ast á Ijósi ...
Fjöldaframleiddar ástarsögur hafa
aldrei veriö vinsælli!
Eftir: Dagnýju Kristjánsdóttur bókmenntafræðing
Það má til sanns vegar færa að mikill meirihluti allra bókmennta sem skrifaður hefur verið fjalli um
ástina og samskipti kynjana í einni eða annarri mynd. Undirtitill Sölku Völku eftir Halldór Laxness er:
„Pólitísk ástarsaga“ og fleiri en eitt erindi á nýafstöðnu Laxnessþingi fjallaði um ástina í verkum hans.
Ástarsagan verður þannig fyrir okkur í hinni svokölluðu „hámenningu", í sígildum heimsbókmenntum,
leikbókmenntum, óperum og ballett. Mun fleiri sækja þó sínar ástarsögur í fjölda- og afþreyingar-
menningu - í dægurtónlist, kvikmyndir, tímarit, spennusögur og síðast en ekki síst í fjöldaframleidd-
ar ástarsögur eins og þær sem hér eru til umræðu.
Þó að ástin sé áberandi í sögu er ekki víst að þar með sé hægt að flokka
hana sem ástarsögu ef marka má fræðimenn. Kristin Ramsdell hefur
skrifað eins konar „alfræði" þessarar bókmenntagreinar, Romance Fict-
ion: a guide to the genre (1999) og hún segir að til þess að geta talist
ekta ástarsaga þurfi bók að uppfylla eftirfarandi skilyrði.
1. Hún þarf að hverfast um ástina þannig að ekki leiki vafi á að ástin
skipti aðalmáli í sögunni. Aðrir söguþræðir eins og sakamál, njósnir,
morð, o.s.frv. eru alltaf í öðru sæti miðað við hið yfirskipaða markmið
sem er að koma elskendunum saman. Þannig fjallar Salka Valka
mun meira um verkalýðsbaráttu og atvinnuþref á Óseyri við Axarfjörð
en samdrátt Arnalds og Sölku. Salka Valka fjallar ekki fyrst og fremst
um ást og Kristin Ramsdell segir: „... meginreglan er að ef lausnin á
hinni rómantísku flækju er ekki það sem heldur áhuga lesanda vak-
andi gegnum alla bókina, þá er bókin trúlega ekki ástarsaga."
(Ramsdell: 1999, 4-5)
2. Hún verður að reyna að ná sambandi við tilfinningar lesanda og virkja
þær í þágu söguhetjunnar. Lesandi verður að geta samsamað sig
söguhetjunni, fundið til með henni og tekið virkan þátt í sögu henn-
ar. Almennir lesendur lýsa því oft þannig að bók hafi „gripið þá“ eða
„haldið þeim“ - þeir hafi ekki getað sleppt henni, þeir hafi hlegið og
grátið en fyrst og fremst hrifist mjög með persónunum og örlögum
þeirra. „Ef ástarsagan nær ekki að tengja sig þannig tilfinningalega
við lesandann þá verður skáldsagan ekki ástarsaga heldur saga um
42