19. júní


19. júní - 19.06.2002, Síða 50

19. júní - 19.06.2002, Síða 50
hafi þær á klæðum.“ Hreinlæti er mjög stór þáttur í trúariðkuninni og þeir sem ganga lengst í því, bæði konur og karlar, fjarlægja öll líkams- hár.“ íbúum Vesturlanda hættir oft til að líta á hefð- bundinn klæðnað múslimskra kvenna sem tákn um undirokun þeirra. Þá er það sérstaklega slæðunotkunin sem fer fyrir brjóstið á mörgum sem láta sér annt um réttindi kvenna. En er málið svo einfalt? Guðrún Pétursdóttir, verk- efnisstjóri uþþlýsinga- og fræðsludeildar Al- þjóðahússins, segir að á námsárum sínum í Þýskalandi í kringum 1980 hafi kvenréttinda- konum þar í landi verið sérstaklega umhugað um að benda múslímskum kynsystrum sínum á að slæðan væri tákngervingur fyrir kúgun og bæri þeim því að láta hana fjúka. Samkvæmt Guðrúnu kom það þeim að óvör- um að vera svarað um hæl af múslimskum kyn- systrum þeirra sem þentu þeim á að líta fyrst í eigin barm áður en þær færu að gagnrýna aðra. í fyrsta lagi sögðu þær slæðuna alls ekki vera kúgunartæki heldur þeirra eigið val, byggt á trúarlegri sannfæringu og siðum. Margar þeirra gætu ekki hugsað sér að sleppa slæðunni á al- mannafæri og liði hreinlega eins og þær væru naktar án hennar. Þær bentu þeim góðfúslega á að ögrandi mínípils, óþægilega háir hælar, flegnir bolir og flaksandi hár gætu að sama skaþi alveg verið túlkað sem kúgunartæki, því fyrir hvern er þessi klæðnaður raunverulega, konuna sjálfa eða karlana sem horfa á hana? Kynjajafnrétti Sophia Hansen segir tyrkneskan lagabókstaf að mestu leyti vera byggðan á svissneskum lögum og þar af leiðandi sé tyrkneska lagakerf- ið nútímalegt. „Staða konu gagnvart lögunum er nákvæmlega sú sama og staða karlmanns. Það veikir samt stöðu konunnar ef hún er ekki múslimi vegna viðvarandi fordóma í réttarkerf- inu. Ef erlend kona þarf að berjast fyrir tyrk- neskum dómstólum þá breytir það öllu ef al- þjóðlegir samningar gilda á milli Tyrklands og þjóðar hennar. Sem betur fer hefur ísland gerst aðili að Hague-sáttmálanum sem hefur gilt frá 25. október 1980 en Tyrkir eru ekki fullgildir að- ilar enn. Sá sáttmáli inniheldur til dæmis stranga, alþjóðlega reglugerð um brottnám barna. ísland er einnig aðili að Barnasáttmála Sameinuðu Þjóðanna frá 1989“, segir hún. „Þeir sem eru strangtrúaðir og rangtúlka Kór- aninn virða landslög oft að vettugi og réttlæta margs konar voðaverk í nafni trúarinnar. Þeir eiga það til að taka lögin í eigin hendur". Þetta viðhorf er einmitt það sem olli þeim hörmulega atburði í Svíþjóð sem nefndur var í upþhafi. Geta tyrkneskar konur valið sér sinn eigin maka? Eru hagkvæmnis- og nauðungarhjóna- bönd algeng? Soþhia segir að í stórborgum Tyrklands tíðkist það yfirleitt að kona geti valið sér mannsefni sjálf og það er tekið fullt tillit til óska hennar. „Samt sem áður eru hagkvæmnishjónabönd töluvert al- geng og þá sérstaklega hjá auðugum fjölskyldum sem vilja halda auðnum innan fjölskyldunnar. Því miður viröast nauðungarhjónabönd vera nokkuð algeng hjá Tyrkjum almennt og þá er það konan sem líður mest, því ef hún fer ekki að vilja fjöl- skyldu sinnar á hún það á hættu að vera afneitað eða jafnvel eitthvað verra.“ Soþhia segist eiga við að jafnvel þótt að tyrk- nesk fjölskylda sé vestræn í háttum og siðum og ekki sé um strangtrúað fólk að ræða, þá séu afskipti fjölskyldunnar í ástarmálum barnanna meiri heldur en við eigum að venjast hér á ís- landi. Þrátt fyrir þessa hálfgerðu kúgun séu 50

x

19. júní

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.