19. júní - 19.06.2002, Blaðsíða 54
íris Ósk Traustadóttir var fulltrúi íslands á Barnaþingi Sameinuðu þjóðanna
Lærði margt á
þremur dögum
Eftir: Elínu Jónsdóttur
Barnaþing Sameinuðu þjóðann var haldið í New
York 5.-7. maí 2002. Þetta var fyrsta Barnaþing
SÞ þar sem börn voru sjálf þátttakendur. Um
350 ungmenni frá 190 aðildarríkjum SÞ komu
saman til að ræða málefni barna í heiminum í
dag. íris Ósk Traustadóttir var annar fulltrúi ís-
lands á þinginu.
Nánast engar upplýsingar höfðu verið gefnar
fyrirfram um umfjöllunarefni þingsins, til að
koma í veg fyrir að stjórnvöld aðildarríkjanna
gætu haft áhrif á það sem börnin hefðu fram að
færa. Á þinginu var aðallega fjallað um lokaá-
lyktun síðasta Barnaþings sem var haldið árið
1990.
Krökkunum var skipt í 7 hópa og valdi íris Ósk
sér hóp sem fjallaði um vernd barna, svo sem
gegn fátækt, ofbeldi í ýmsum myndum, og
vernd gegn umhverfinu. Sá hópur og hópurinn
um menntun voru þeir sem vöktu mestan áhuga
á þinginu. Vernd gegn umhverfinu sneri að því
sem íris Ósk vildi koma á framfæri, eða vernd
barna gegn vímuefnum.
Þegar litið er til ólíkra menningarheima, mis-
munandi trúarrbragða, ungs aldurs og reynslu-
leysis þeirra sem þingið sátu, mætti ætla að
örðuglega gengi að stýra markvissum umræðu-
hópum og setja fram ályktanir.
En reyndin var allt önnur. Eftir því sem krökk-
unum var tjáð tekur það hefðbundnar nefndir
hjá Sameinuðu þjóðunum um einn mánuð að
setja saman eina málsgrein sem er líkleg til að
komast sem næst því að falla öllum aðildarríkj-
unum í geð, óháð menningarsvæði. Á Barna-
þinginu tók þrjá daga að fullgera heilt skjal sem
allir gátu unað við. Enginn fullorðinn sat þingið,
þeir komu þar aðeins að skipulagningu. Krakk-
arnir stýrðu sjálf umræðunum og rituðu fundar-
gerðir. Hvert barn hafði með sér fylgdarmann til
verndar og aðstoðar, og til að túlka ef þess var
þörf. íris Ósk segir hópinn hafa fljótt orðið sam-
stilltan, og að allir hafi vitað vel hvaö þau vildu
með veru sinni á þinginu og hverju þau vildu
koma á framfæri. Hreinskilni og mikill vilji til að
leggja sig fram hafi einkennt andrúmsloftið.
Komið hafi fram skýrar lausnir á þeim vanda-
málum sem fyrir lágu, og enginn hafi legið á
skoðunum sínum af ótta við að styggja hina í
hópnum. Strax hafi verið ákveðið að taka tillit til
skoðana allra og að allir væru jafnir, óháð trú-
arbrögðum og/eða annars mismunar. Það sem
íris Ósk lagði áherslu á var í hversu fáum lönd-
um er boðið uppá meðferðarúrræði fyrir börn
undir 18 ára aldri. Hvað það varðar er ísland í
fararbroddi, en samkvæmt upplýsingum írisar
Óskar eru um 85 meðferðarúrræði fyrir börn hér
á landi í dag og mættu í raun vera fleiri þar sem
sífellt fleiri börn leiðist út í vímuefnaneyslu.
Aldurinn sem börn hefji neyslu sé líka stöðugt
að færast neðar.
í lok þingsins vann 17 manna hópur ályktun úr
fundargerðum hópanna. Ályktunin var síðan
lesin upp á aukaallsherjarþingi Sameinuðu
þjóðanna um málefni barna, sem hófst daginn
eftir að barnaþinginu lauk. í ályktuninni var að-
aláhersla lögð á að stuðla að bættri heilsu barna
í heiminum, aukinni menntun, vernd gegn of-
beldi og misnotkun og sókn gegn alnæmi í
heiminum.
Það sem íris Ósk finnst standa uppúr fyrir sig
persónulega eftir þingið, er að hafa fengið að
sjá við hversu góðar aðstæður hún býr við sem
ungur íslendingur í dag miðað við mörg önnur
börn frá öðrum aðildarríkjum Sameinuðu þjóð-
anna. Ýmislegt í lífinu sem hún hafi tekið sem
54