19. júní


19. júní - 19.06.2002, Page 59

19. júní - 19.06.2002, Page 59
hjónabandsskyldur kvenna vera nákvæmlega þær sömu og giftra karla. „Þau eru jöfn fyrir Guði,“ segir Guðlaug og vísar í Biblíuna: „sbr. I. Mós og eiga sig ekki sjálf, sbr. I. Kor. 7:4: „Ekki hefur konan vald yfir eigin líkama, heldur maður- inn. Sömuleiðis hefur og maðurinn ekki heldur vald yfir eigin líkama, heldur konan.“ Þannig hafa þau ekki forræði yfir sjálfum sér heldur vald hvort yfir öðru.“ Reglur um klæðaburð kvenna íslendingar virðast almennt hafa ákveðna, staðl- aða ímynd af konum í heittrúarsöfnuðum, þ.e.a.s. að þær séu ómálaðar, síðhærðar og gangi í lát- lausum klæðnaði, s.s. mussum og síðum pilsum. Margir telja slíkt útlit byggja á reglum sem gilda innan safnaðanna um klæðaburð kvenna. En er því svo farið? Viðmælendur kveða svo ekki vera. Svanberg K. Jakobsson, kynningarfulltrúi Votta Jehóva, segir t.d. að í söfnuðinum séu „engar reglur um klæða- burð kvenna aðrar en þær almennu reglur, sem gilda um bæði kynin, og klæðnaður á að vera sómasamlegur og snyrtilegur og samræmast því sem talið er viðeigandi á hverjum stað og hverjum tíma.“ Eins segir Gunnar Þorsteinsson, forstöðu- maður Krossins, engar reglur vera þar um nema hið almenna velsæmi. Séu myndir frá samkomum safnaðana skoðað- ar, en þær má nálgast á vefsetrum þeirra t.d. www.vegurinn.is og www.cross.is, eru hvorki konur né karlar frábrugðin öðrum íslendingum í fatavali og fylgjast greinilega með stefnum og straumum í tísku eins og aðrir. Þess má þó geta að samkvæmt rannsókn Mar- grétar giltu áður fyrr strangari reglur um klæða- burð og hársídd kvenna í Krossinum þótt nú sé slíkt valfrjálst. Það er hins vegar forvitnilegt að hársídd kvenna skuli hafa ákveðna trúarlega merkingu í þeim söfnuði eins og Margrét víkur að í rannsókn sinni. Talið er að hár kvenna efli guð- legan mátt þeirra í baráttunni í andaheiminum

x

19. júní

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.