19. júní


19. júní - 19.06.2002, Page 61

19. júní - 19.06.2002, Page 61
hans áliti eini trúarsöfnuðurinn hérlendis þar sem kynjunum er gert jafn hátt undir höfði. Þess má þó geta að á opinþerri heimasíðu Votta Jehóva í Bandaríkjunum, www.watchtower.org, er fjallað um ýmisleg jafnréttistengd málefni. Á henni er t.d. fjallað um mismunun gegn konum sem alda- langt og alþjóðlegt vandamál, með hliðsjón af kynferðislegu áreiti, misnotkun á stúlkubörnum, vændi og kynlífsiðnaðinum. Staða nútímakonunnar Að lokum lá beinast við að spyrja hvað forsvars- mönnum safnaðanna þætti um stöðu nútímakon- unnar í íslensku samfélagi. Guðlaug Tómas- dóttir, rekstrarstjóri Vegsins, vísar aftur í orð sín um það jafnrétti sem virðist ríkja innan safnaðar- ins. En af þeim er Ijóst að afstaða Vegsins er já- kvæð gagnvart þeirri þróun sem hefur átt sér stað í jafnréttismálum hérlendis undanfarin ár. Gunnar Þorsteinsson, forstöðumaður Krossins, hafði hins vegar þetta um málið að segja: „Nú- tímakonan hefur glutrað niður hlutverki sínu og er að reyna að vera karl í kvenmannslíkama. Menn setja hefðbundin vettvang konunnar á óæðri sess en honum ber. Konan er áttavillt og skortir öryggi í hlutverki sínu sem aftur veldur hugarró og ham- ingju. Upplausn hinna hefðbundnu hlutverka- skipta veldur konum angri. Þær hafa ekki nægi- lega skýrt skilgreinda stöðu. Ég tel þetta m.a. vera orsök þess að helmingi fleiri konur en karlar glíma við þunglyndi.'1 Svanberg Jakobsson, kynningafulltrúi Votta Jehóva, var töluvert mildari í aftstöðu sinni gagn- vart breyttu hlutverki kvenna. Hann segir söfnuð- inn vissulega kunna að meta þau góðu störf sem konur sinna í þjóðfélaginu í dag. „Staða þeirra í hinum vestræna heimi hefur að mörgu leyti batn- að á síðustu áratugum. Við vitum samt að víða sæta konur enn þá misrétti og kúgun þrátt fyrir þær framfarir sem orðið hafa.“ Ekki allir settir undir sama hatt Af svörum forsvarsmanna safnaðanna þriggja, Vegsins, Krossins og Votta Jehóva, er Ijóst að ekki er hægt að setja þá alla undir sama hatt. Þeim ber t.d. öllum saman um að kynjajafrétti ríki innan safnaðanna en eru hins vegar ekki allir á eitt sáttir hvað viðvíkur femínisma og breyttu hlutverki kvenna í þjóðfélaginu. Margrét Jónsdóttir vísar í þessu samhengi til orða Max Weber í grein sinni sem bendir á að þótt heittrúarsöfnuður telji kynin vera jafnrétthá gagn- vart Guði þá sitji karlar oft einir að allskyns emb- ættum og stjórnunarstöðum og þeir hafi lokaorð- ið varðandi mikilvægar ákvarðanatökur. En það er ekki þar með sagt að slíkt sé hægt að heimfæra upp á framangreinda söfnuði. Á sama hátt má ekki að ganga út frá því að á- þekkar skoðanir þeim sem hér birtast ríki innan annarra kristinna heittrúarsöfnuða á íslandi, þær eru líkast til eins misjafnar og hóparnir eru marg- ir. Svör forsvarsmannanna þriggja er ætlað að veita innsýn í heim kristinna heittrúarsöfnuða á ís- landi, á hlutverk kvenna innan þeirra, skoðanir safnaðanna á jafnrétti og þeim breytingum sem orðið hafa á hlutverki kvenna. Þessi svör eru hins vegar ekki tæmandi, því þau gefa aldrei heild- ræna mynd af hugmyndum allra meðlima safnað- anna þótt þau segi sitthvað um yfirlýsta stefnu hópanna og óskráðar reglur þeirra. Til að slíkt verði þyrfti líka að leita álits hjá safnaðarmeð- limunum sjálfum, eins og Margrét Jónsdóttir ger- ir í rannsókn sinni, og þá mætti t.d. um leið at- huga hvort og þá með hvaða hætti stöður kvenna og hlutverk innan safnaðanna rekast á samfé- lagslegt hlutverk þeirra. □ / Gunnar Þorsteinsson. „Aðskilnaður rikis og kirkju". I.maí 2002. Sjá heimasíðu Krossins á vefslóð: http://cross.is/vef.asp. ii Max Weber. „The Soteriology of the Underpriviteged". Max Weber: Selections in transiation. Ritstjóri W. G. Runciman. Cambrigde University Press, Camebridge, 1978. S. 174-191. /77 Heimasíða Hagstofu Islands á vefslóð: www.hagstofa.is/frettir/soknirl „07 .xls. iv Sjá heimasíðu Vegsisns á vefslóð: www.vegurinn.is/veg- urinn.htm. v Margrét Jónsdóttir. „Af konum sem bíða.“ Konur og kristsmenn: Þættir úr kristnisögu á íslandi. Ritstjóri Inga Huld Hákonardóttir. Háskólaútgáfan, Reykjavík, 1996. S. 251,261 og 286. vi Sama. S. 288. 61

x

19. júní

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.