Sólskin - 01.07.1935, Síða 9

Sólskin - 01.07.1935, Síða 9
Misjöfn Ijós. Lítið barn lærir fyrst að ,elska pabba og mömmu og aðra, sem góðir eru við það. Ást þess er eins og lítið kertaljós. Það er bjart og heitt, en nser skammt. Barnið vex og lærir að þekkja og elska fjölda marga, jafnvel í öllu umhverfi sínu. Ást þess er eins og olíulampi, sem lýsir upp heila baðstofu. Barnið fer í skóla og lærir um land sitt og þjóð og elskar allt, sem eflir frelsi hennar og frama. Ást þess er eins og gasljós, sem lýsir heilu þorpi. Barnið er orðið að stórum manni. Hann kann veraldarsöguna, skilur tungumál annara þjóða. — Hann elskar að sönnu móður sína mest allra kvenna, en hann hefir innilega samúð með öllum konum og körlum. ísland elskar hann mest, en hann ann og hinum löndunum. Hann segjr með Stefáni G. Stef- ánssyni: Til framandi landa eg bróðurhug ber, þar brestur á viðkvæmnin ein. En ættjarðarböndum mig grípur hver grund, sem grær kringum Islendings bein. Ást hans er eins og rafljós, sem lýsir upp heila borg. Og hann keppir að því, að líkjast honum, sem kenndi okkur að elska óvini okkar. Friðarhöfðingjan- um mikla, sem líkja mætti við sjálfa sólina, sem vef- ur svo allt í geislum sínum, að jafnvel helfreðinn jök- ullinn viknar við. Nú er talað og ritað meira en nokkru sinni áður um alheims frið. Þjóðirnar sjá, að rétt væri að hlýða 7

x

Sólskin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sólskin
https://timarit.is/publication/672

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.