Sólskin - 01.07.1935, Page 30
Níundi biti
Slyaið á ísnum við Niagarafossinn.
Þegar eg var í Kanada fyrir nokkrum árum,
skeði mjög voðalegur viðburður við Niagarafoss-
inn. Þetta var um hávetur. Þrjár manneskjur, karl-
maður, kona hans og drengur seytján ára, voru
að ganga yfir ísbrú, er lá yfir ána rétt hjá Niagara-
fossinum. Allt í einu heyrðu þau bresti í ísnum og
stykki losnuðu úr ísbrúnni. Maðurinn og konan voru
stödd á ísjaka, sem losnað hafði úr ísbrúnni, sem
Þetta er landabréf, aem eýnir staöinn þar sem slysiB gerBist.
þau ætluðu að ganga yfir ána á, og drengur þeirra
stóð á öðrum jaka. Báðir jakarnir flutu hægt nið-
ur ána. Allt í kringum þau var vatnið þakið jökum,
sem rákust sífellt hver á annan með miklum þunga,
svo að marraði og söng í þeim, og stór stykki brotn-
28