Sólskin - 01.07.1935, Page 46
þær syndir, sem hann hefir drýgt gegn guði. Hann
hefir heitstrengt að halda handleggnum þannig
hreyfingarlausum til æfiloka. Blóðrásin smá-minnk-
ar vegna áreynsluleysisins, handleggurinn visnar
eins og jurt, sem vantar vökvun, og verður að síð-
ustu ekkert annað en skinin beinin og bjórinn, og
til einskis nýtur.
Þess vegna skaltu reyna hæfilega á hvern líkams-
hluta. Það geturðu meðal annars með því
að sippa.
En bandið á að sveiflast aftur fyrir höfuð. Dreng-
ur, sem sveifjar bandinu fram yfir höfuð, með upp-
kýttar axlir og innskeifur, getur gert meiri skaða
en gagn með æfingunni.
Fáðu þér band og reyndu. Bandið þarf ekki að
vera dýrt og fallegt, með handföngum úr tré. Hafir
þú aldrei reynt að sippa, er gott fyrir þig að fá
tvo kunningja þína til að sveifla bandinu, svo að
þú þurfir ekki að hugsa um annað en hoppa á réttu
augnabliki. Þú stendur teinréttur, axlir niður,
brjóstið út, og lætur tærnar snerta bandið. Viðbú-
inn! Bandið sveiflast upp fyrir höfuð, og þú hopp-
ar upp, svo að það sláist ekki á hæla þér. Þegar þú
hoppar, eiga hælar að vera saman, en tærnar að
snúa út. Beygðu hnén svolítið út, þegar þú kemur
niður. Hoppaðu alltaf hátt, þegar bandið er yfir
höfðinu á þér, og taktu eitt smáhopp á milli. Þá
er hægara að halda jafnvægi og takti.
Reyndu svo að sveifla bandinu sjálfur. Vertu vel
beinn, komdu léttilega niður á tærnar, svo að eng-
44