Sólskin - 01.07.1935, Page 47
inn hlunkur heyrist. Vertu ekki þungur á þér eins
og naut, heldur léttur eins og köttur. Þú þarft að
sippa þrjátíu sinnum, aftur á bak og hjálparlaust,
til þess að fá „fyrstu stjömu“, svo að það er gott
að æfa sig heima.
Sumir drengir segja, að sippuleikur sé að,eins fyr-
ir telpur. En ylfingar eru betur að sér. Þeir vita, að
hnefaleikamenn og fótboltaiðkendur þjálfa sig
meðal annars á að sippa.
Höfrungahlaup og kollhnís.
Eg hefi séð marga drengi í höfrungahlaupi.
Sumum tekst það ágætlega, en aðrir eru líkari kola-
pokum, sem velta af herðum burðarkarla, en rösk-
um drengjum. Það er best fyrir þig að hoppa í
fyrstu yfir einhvern, sem er líkur á stærð og þú, eða
heldnr minni. Fáðu hann til að standa fyrir fram-
an Jlijg, beygja sig um mjaðmirnar og lúta höfði.
ITann verður stöðugri, ef hann stendur nokkuð
gláft með hendur á hnjánum. Hlauptu svo til, settu
hfindurnar á herðar hans og hoppaðu yfir hann.
45