Sólskin - 01.07.1935, Qupperneq 49
ið, en sértu beinn og fremur hnarreistur, er ekki hægt.
að segja hve langt þú kemst. Þú getur haft húfu á
höfðinu, ef það er svo einkennilega lagað, að bæk-
urnar tolla ekki á því að öðrum kosti.
Þú hefir líklega séð mynd af vatnsbera í Austur-
löndum. Leiktu hann; en taktu samt ekki könnu
frá henni mömmu þinni, því að það gæti orðið grátt
gaman. Þú getur notað einhverja hluti, sem ekki
skemmast, þó að þeir detti á gólfið.
Gjörð, hopp og knöttur.
Flestum drengjum þykir gaman að skoppa gjörð.
Það er líka ágætur leikur. Það er góð æfing í
hlaupi, ef hlaupið er á tánum. Það útheimtir skjóta
hugsun og snarræði að stýra gjörðinni, en nauð-
synlegt er að slá ekki alltaf með sömu hendi. Mest
gaman er að setja marga kassa, steina eða aðrar
torfærur á leiðina, og þegar þú getur stýrt klak-
laust fram hjá þeim öllum, þá eru hendurnar farn-
ar að hlýða skipunum heilans fljótt og öruggt.
Hopp og stökk er líka góð íþrótt. Reyndu að
hoppa létt, líkt og fugl, en ekki þunglamalega eins
og boli. Hoppaðu á tánum, ekki á allri ilinni. Það
er gaman að hoppa í boga á öðrum fæti kringum
tvo hluti, svo að leiðin myndi 8 í tölu; hoppa á
vinstra fæti, þegar beygt er til vinstri, og skipta um
fót, þegar beygt er til hægri.
Það útheimtir mikla æfingu fyrir augu og hend-
ur að verða leikinn í því að kasta og grípa knött.
Æfðu þig vel með vinstri hendi. Þá finnst þér auð-
veldara að vinna með hinni hægri á eftir. Það er
47