Sólskin - 01.07.1935, Síða 64
Blindu jötnarnir.
Tveir stólar eru settir á gólfið með eins metra milli-
bili og snúa bökunum hvor að öðrum. Milli þessara
tveggja stóla, sem eiga að tákna hellismunna,
standa tveir ylfingar með bindi fyrir augum. Hald-
ast þeir í hendur, og halda líka í stólbökin. Þor-
steinn jötnabani verður að komast undir hendur
þeirra, eða milli fóta þeirra, og fer svo hægt, að
blindu jötnarnir verði hans ekki varir. Blindu jötn-
arnir mega ekki sleppa stólbökunum, en mega
sleppa takinu á hönd hins. Það er ekki nóg að
snerta Þorstein, þeir verða að halda honum. Ef þeir
geta það án þess að sleppa stólbökunum, þá er
hann fangi þeirra. Þannig reynir hver ylfingurinn
af öðrum. — Ef fangar jötnanna eru fleiri í leiks-
lok en þeir, sem sluppu í gegn, hafa jðtnarnir unn-
ið. Að öðrum kosti hafa menn Þorsteins unnið.
(Ráðlegast væri, að einn ylfingur sæti á hvorum
stól, til þess að gera hann stöðugri.)
Varið ykkur! Skakklappi!
Hve margir ylfingar sem vera skal geta verið í
þessum leik, ef herbergið er nógu stórt. Einn ylf-
ingur er valinn til þess að vera Skakklappi. Hann
62