Sólskin - 01.07.1936, Blaðsíða 7
eftir sumum stórfljótum erlendis, til dæmis
Amason-f ljótinu ?
Ingveldur: Já, það er satt. Og það er gott
dæmi upp á það, sem eg var að segja, að flóð-
bylgjan er eitthvað viku að fara frá mynni
Amason-fljótsins, þangað sem efst gætir mun-
ar flóðs og fjöru við fljótið. Það er því stór-
streymi viku seinna þar upp frá, en við mynn-
ið.
Sigga litla: En hvað hann er fallegur, þessi
hólmi. Er satt að hann hafi verið búinn til ?
Ingveldur: Nei, það held eg ekki. Mér hefir
verið sagt, að Sverrir steinhöggvari, sem var
vel kunnur Reykvíkingur fyrir tveimur
mannsöldrum, hefði búið hann til, en það er
misskilningur, því að hólminn sést á upp-
drætti af Reykjavík, sem dreginn var árið
1801. En það er búið að stækka hólmann svo
oft, að mestur hluti hans er tilbúinn.
Mjói: Til hvers hefir hann verið stækkað-
ur?
Ingveldur: Til þess að betur færi um krí-
urnar. Svo var víst einu sinni vonast til þess,
að álftirnar verptu þar.
Þormóður: Hafa þær verpt þar?
Ingveldur: Nei, en þær hafa verpt í smá-
hólma, sem er í suðurenda Tjamarinnar.
5