Sólskin - 01.07.1936, Blaðsíða 42
Sigga litla: Ætli hann Jóhann stóri gæti
ekki vaðið alstaðar í henni?
Ingveldur: Hvaða Jóhann?
Mjói: Hún meinar Jóhann Pétursson, Svarf-
dælinginn mikla.
Ingveldur: Nú, hann. Já, ætli hann gæti
það ekki.
Þormóður: Hann gæti það, ef hann synti
sumstaðar.
Sigga litla: Var þessi tangi hér alltaf, sem
vegurinn er á, eða var hann búinn til?
Þormóður: Alltaf ertu gáfuð, Sigríður.
Veistu ekki, að heimurinn var allur skapaður
á sex dögum, og hvernig heldurðu þá, að það
hafi getað verið tími til að gera veg yfir
Tjörnina.
Ingveldur: Þessi vegur var gerður úr ösku
og rusli, sem kom frá húsunum, Sigga litla,
og svo var hlaðið grjóti utan með.
Þormóður: Hæ, þarna náði kría í hornsíli.
Ingveldur: Já, það er nóg af þeim hér.
Annars er vert að geta þess, að hornsílin eru
töluvert merkilegir fiskar, þó lítil séu.
Þormóður: Eru til minni fisktegundir en
hornsílin?
Ingveldur: Já, mér hefir verið sagt, að
minnsta fisktegundin, sem til væri, sé í vatni
40