Sólskin - 01.07.1936, Blaðsíða 68
an, urtin og blesönclin (sem reyndar er ekki
önd). Enn fremur tjaldurinn, sem á 3 egg,
rjúpan, sem á 7—12 egg, steindepillinn og
maríuátlan.
Þormóður: Er ekki eiginlega réttara að
segja maríuerla?
Ingveldur: Ójú, það er eiginlega réttara.
Hún á 4—5 egg og steindepillinn 5—6 egg.
Eitthvað svolítið verpir hér af tildru; hún á
4 egg, og rauðbrysting, sem líka á fjögur.
Þessar tvær síðast nefndu tegundir verpa að-
allega á Grænlandi, og sama má segja um
þórshanann, sem verpir í júní og á 4 egg eins
og óðinshaninn. Svo er nú ritan eða skeglan,
hún verpir í björgum við sjó og á 2—3 egg.
Fyrri hluta júní verpir líka flórgoðinn. Hann
býr sér til hreiður langt úti í tjörnum og eg
held að þau séu á floti. En í miðjum júní verp-
ir krían elskuleg.
Þormóður: Nú ertu víst búin að telja upp
alla fugla?
Ingveldur: Nei, vertu blessaður. Svo verpa
í júní grágæsin og graföndin, taumöndin og
skúföndin, dúköndin og hrafnsöndin og stóra
toppönd.
Mjói: En litla toppönd?
Ingveldur: Ja, nú veit eg ekki. Ekki veit eg
66