Sólskin - 01.07.1936, Blaðsíða 12
um. Hana má þekkja á því, að hún er með
fagurgula fætur og gult og svart nef, en þó
fyrst og fremst á því, að það slær rauðleitum
blæ á brjóst hennar. Og svo er fisk-þernan
svonefnda, sem er líkust okkar kríu bæði að
stærð og að öðru leyti, því að hún er með
rauða fætur og rautt nef, eins og hún.
Þormóður: En hvernig á að þekkja hana
frá okkar kríu?
Ingveldur: Ja, það veit eg nú varla. Hún
kvað vera með sterklegra og klumbslegra nef.
Svo er nú dverg-þernan og svart-þernan. Þær
eru auðþekktar á því, hvað þær eru litlar.
Dverg-þernan er víst næstum helmingi minni
en okkar kría, og svart-þernan er auk þess
auðþekkt á litnum, því að hún er öll dökk á lit.
Sigga litla: Nei, sko, þarna er verið að gefa
andarungum.
Ingveldur: Já, þetta er villt önd með ung-
ana sína. En þær vita, að þær eiga hér frið-
land og eru því lítið eða ekkert hræddar.
Sigga litla: Nei, þarna er önnur með marga,
marga unga.
Ingveldur: Já, þær eru komnar eitthvað
fjórar eða fimm með ungana sína á Tjörnina.
En margar eru ókomnar enn.
10