Sólskin - 01.07.1936, Side 19

Sólskin - 01.07.1936, Side 19
ir. Hér hafa til dæmis verið dugganda-hjón í vor. Hér hefir líka verpt urt. Sú önd er auð- þekkt á því, hvað hún er lítil. Svo hafa hér verpt ýmsar endur, sem voru með unga, sem köfuðu, en hvaða endur það voru, vissi eg ekki. Mjói: Geta grænhöfða-endur ekki kafað? Ingveldur: Jú, þær geta gert það og þær gera það stundum, til dæmis ef þær eru eltar á bát, meðan þær eru í sárum og geta ekki flogið. Annars gera þær það sjaldan. Þó sá eg nokkrar gera það á Tjörninni í vor. Mér datt í hug, hvort þær hefðu ekki vanist á það í vetur, þegar allt var frosið og þær þurftu að leita sér fæðu í sjónum, þar sem þær náðu ekki marhálminum, nema að kafa. Mjói: Álftirnar geta víst ekki kafað? Ingveldur: Jú, þær geta það, en þær gera það víst sjaldan. Maður, sem eg þekki, segist einu sinni hafa séð álft kafa hér á Tjörninni. Það voru þrjár álftir saman, og það var leik- ur í þeim. Þær voru vængstýfðar, svo að þær gátu ekki flogið, en þær flögruðu eftir vatns- horðinu, og svo stakk ein þeirra sér og synti tö'luvert langa leið í kafi; líklega 50 til 60 skref. Mjói: Skref álftarinnar? 17

x

Sólskin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sólskin
https://timarit.is/publication/672

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.