Sólskin - 01.07.1936, Page 24

Sólskin - 01.07.1936, Page 24
Ingveldur: J,á, frá báðum endum. Hann styttist hér um bil um sjötta hluta. Mjói: Geta álamir orðið stórir? Ingveldur: Hængarnir (það eru karlfisk- arnir) verða allt að hálfri stiku á lengd, en hryggnurnar (kvenfiskarnir) verða tvöfalt lengri, eða eins og handleggur á fullorðnum manni. Álar verða þó oft miklu stærri en þetta. Það hafa fengist álar hér, sem voru á aðra stiku á lengd, og erlendis álar, sem voru hálf önnur stika á lengd og sex tvípund (kg) á þyngd. Þormóður: Stika, hvað er það? Ingveldur: Stika eða metri, það er sama. Mjói: Hvað ætli álarnir séu gamlir, þegar þeir eru fullorðnir? Ingveldur: Hængarnir eru svona níu ára, en hryggnurnar halda áfram að vaxa, og leita ekki til sjávar, fyr en þær eru svona um það bil þrettán ára. Þá fara þær til þess að hryggna. Þormóður: Hvert fara þær? Ingveldur: Þær fara óraveg suður og vest- ur í Atlantshaf. Mjói: En hvenær koma þær aftur? Ingveldur: Þær koma aldrei aftur, eins og eg sagði áðan. Álarnir deyja að hryggning- 22

x

Sólskin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sólskin
https://timarit.is/publication/672

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.