Sólskin - 01.07.1936, Side 27

Sólskin - 01.07.1936, Side 27
þurfa að skríða á land, til þess að komast áfram. Þormóður: Ætli það sé gott að veiða þau þar? Ingveldur: Það er auðveldara en í lækjun- um, en það er samt nokkuð erfitt, því að þeir eru varari um sig þar og sjá alveg eins vel á landi eins og í vatninu. Mjói: Fara þá allir álar í sjóinn aftur? Ingveldur: Þeir reyna það allir, þegar þeir verða fullorðnir. Mjói: En ef þeir eru hafðir í tjörn, sem þeir komast ekki úr. Deyja þeir þá? Ingveldur: Þeir deyja að lokum, en þeir geta þó víst lifað nokkuð lengi. í „Fiskunum“ (bók eftir Bjarna Sæmundsson) er sagt frá ál, sem var hafður í lítilli tjörn, sem hann komst ekki úr, og varð hann eitthvað fimm- tíu ára gamall. Mjói: Það væri gaman að hafa ála í dálítilli tjörn, sem ekkert afrennsli væri úr, og vita, hvort þeir geta orðið fimmtíu ára' gamlir. Þormóður: Þú ert eins og kerlingin, sem keypti sér hrafna, til þess að vita, hvort það væri satt, að þeir gætu orðið hundrað ára. Mjói: Það er ekki víst, að hún hafi verið svo vitlaus, sú kerling. 25

x

Sólskin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sólskin
https://timarit.is/publication/672

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.