Fréttablaðið - 01.12.2010, Síða 21
MIÐVIKUDAGUR 1. desember 2010
Í Aftenposten þann 29. ágúst sl. er greint frá því að Öryggis-
ráð Noregs (NSM) hafi í fyrsta
sinn orðið vart við tölvuárás á
orkufyrirtæki þar í landi en ekki
er greint frá því hvaða fyrirtæki
urðu fyrir barðinu á þessari árás.
Tölvuglæpamenn höfðu verið
að prófa sig áfram í langan tíma
áður en ráðist var á orkufyrir-
tæki í Noregi en fyrr á árinu létu
þeir til skarar skríða í Hvíta-
Rússlandi og Þýskalandi. Not-
ast var við veikleika í hugbún-
aði frá Siemens (Simatic WinCC)
sem notaður er til að stýra bún-
aði í allt frá pizzaofnum til olíu-
borpalla. Þennan hugbúnað er
að finna í a.m.k. 200 fyrirtækj-
um í olíuiðnaði, orkuiðnaði og
málm- og matvælafyrirtækjum.
USB lykill var skilinn eftir sem
innihélt tölvuóværu (Trojan) og
þegar starfsmaður fyrirtækis
tengdi hann við tölvu smitaði
hann tölvuna og þaðan var
árásinni svo stýrt. Það er ekki
enn vitað hverjir stóðu á bak við
þessa árás né í hvaða tilgangi.
Leiða má að því líkur að upp-
lýsingakerfi sem íslensk fyrir-
tæki og stofnanir nota séu allt
eins líkleg skotmörk tölvuþrjóta
í þeim tilgangi að leita leiða til að
prófa sig áfram við hönnun kerfa
og aðferða sem notuð eru annars
staðar í heiminum. Jafnvel sem
stökkpall til að framkvæma
árásir frá.
Dr. Charlie Miller, stærðfræð-
ingur sem vann fyrir öryggis-
ráð bandarískra stjórnvalda við
hönnun á tölvuvarnarbúnaði
(Intrusion Detection System IDS)
og kannaði veikleika upplýsinga-
kerfa annarra landa í fimm ár,
færði rök fyrir því, byggð á rann-
sóknum undanfarinna ára, að
hægt væri að taka niður helstu
stoðkerfi Evrópusambandsins.
Það myndi kosta um 100 milljón-
ir Bandaríkjadala, 750 manns
og tvö ár til að framkvæma.
Slík árás í framkvæmd myndi
vera með sama sniði og árásir
á norsk orkufyrirtæki þar sem
tölva starfsmanns t.d. hjá London
Stock Exchange eða frönsku
orkufyrirtæki væri smituð með
njósnahugbúnaði. Næstu 12-18
mánuði væru notaðir til að safna
gögnum um högun kerfa, koma
fyrir hugbúnaði víðar á innri
netum, hlera netsamskipti og
komast yfir aðgangsorð o.s.frv.
Þetta væri gert í þeim tilgangi
að komast yfir stjórnborð bún-
aðar sem notaður er til að stýra
miðlægum kerfum. Um 18-21
mánuðum síðar væri hin eigin-
lega árás gangsett. Opnað yrði
fyrir eldveggi og svokölluð DDOS
(Distributed Denial of Service)
árás sett af stað sem myndi
slökkva á öllum helstu stoðkerf-
um og íbúar Evrópu sambandsins
myndu vakna upp við rafmagns-
leysi, sím- og netkerfi óvirk,
bankakerfi lamað, samgöngur
niðri o.s.frv. Það myndi taka
nokkra daga að koma öllum kerf-
um í gang að nýju en afleiðing-
arnar yrðu gífurlegar, svo ekki sé
talað um kostnað og trú almenn-
ings á upplýsingatækni.
100 milljónir Bandaríkjadala
er ekki há upphæð ef hún er sett
í samhengi við til dæmis það
að Tiger Woods greiddi fyrrum
eigin konu sinni þessa upphæð
vegna skilnaðar þeirra, þessa
upphæð er hægt að vinna á eina
hönd í póker í Las Vegas og svo
mætti áfram telja.
Það má áætla að um 1,6 millj-
arðar árása séu gerðir daglega
á fyrirtæki og opinbera aðila í
Bandaríkjunum. Tölvuhernaður
er nýtt hugtak sem við eigum
eftir að venjast og þótt það geti
hljómað eins og vísindaskáld-
skapur þá er það fjarri því.
Árás áþekk þeirri í Noregi
hefur verið framkvæmd áður,
þann 27. apríl 2007 réðust tölvu-
þrjótar á Internetfréttaveitu í
Eistlandi á sama tíma og landið
var í harðvítugum pólitískum
deilum við Rússa. Árásir héldu
áfram að stigmagnast á næstu
þremur vikum sem enduðu með
því að helstu stoðkerfi Eistlands
voru knésett. Mun þróaðri árásir
gætu mögulega fylgt í kjölfar
þessara árása því þeir sem
stjórnuðu árásinni öfluðu gagna
sem hægt væri að nýta til annars-
konar árása víðsvegar um heim-
inn. Einnig var gerð tölvuárás á
Georgíu nokkru áður en Rússar
réðust inn í landið 2008 og 2009
þegar átök voru þar í landi
yfir héraðinu Abkasíu í Suður-
Ossetíu.
Hér á landi mætti færa rök
fyrir því að við séum það fjarri
öðrum löndum að lítill ávinning-
ur væri fyrir tölvuglæpamenn
að valda skaða eða brjótast inn í
helstu stoðkerfi landsins en það
er því miður öðru nær. Við erum
álitlegt skotmark t.d. fyrir aðila
sem myndu vilja æfa slíkar árás-
ir því við erum að keyra sama
hugbúnað og önnur lönd. Annað
dæmi um álitlegt skotmark er
Wikileaks en fréttir berast af því
að hér á landi verði settur upp
fréttamiðill frá þeim.
Nýlega birti heimasíða Wiki-
leaks trúnaðargögn ýmissa
stjórnvalda og varð fyrir árás
tölvuþrjóta. Þar kemur m.a. fram
að kínverskur ráðamaður lét fyrir-
skipa tölvuárás á Google eftir að
hafa séð slóð á heimasíðu sem
innihélt upplýsingar um viðkom-
andi sem honum mislíkaði. Einn-
ig má þar finna upplýsingar um
að Bandaríkin telji verulega ógn
stafa af tölvuhernaði Kínverja.
Þrátt fyrir að við Íslendingar
séum eyland og að hér sé enginn
her þá megum við ekki sofna
á verðinum, „stinga hausnum í
sandinn“ og gera ráð fyrir því að
ekkert slæmt muni henda okkur.
Það er mjög mikilvægt að íslensk
stjórnvöld séu nú markvisst að
vinna að mótun áætlana til að
lágmarka tjón sem stafað gæti af
völdum tölvuhernaðar.
Tölvuglæpir og tölvuhernaður
Tölvuöryggi
Ólafur Róbert
Rafnsson
ráðgjafi í upplýsinga-
öryggismálum hjá
Capacent
Leiða má að því líkum að upplýsingakerfi
sem íslensk fyrirtæki og stofnanir nota séu
allt eins líkleg skotmörk tölvuþrjóta í þeim tilgangi að
leita leiða til að prófa sig áfram við hönnun kerfa og
aðferða sem notuð eru annars staðar í heiminum.
Það eru vond tíðindi í loftinu í Kópavogi enda liggur fyrir að
skera niður rekstur bæjar félagsins
um 700 milljónir. Þjónusta bæjar-
félagsins mun verða sett niður á
öllum sviðum en þó er það sameigin-
leg niðurstaða að verja grunnþjón-
ustuna með öllum tiltækum ráðum.
Viðskilnaður Sjálfstæðis flokksins
og Framsóknarflokksins er slíkur
að litlu má muna að bæjarfélag-
ið sé sett í gjörgæslu félagsmála-
ráðuneytisins.
Það er nöturleg aðkoma nýrrar
bæjarstjórnar við þessar aðstæður,
fyrsta verkefni nýs meirihluta er
að skerða þjónustu við börn, aldr-
aða og láta af stuðningi við ýmis
góð mál sem skipta sam félagið í
Kópavogi miklu máli. Kópavogs-
búar hafa því miður veðjað á
ranga stjórnmálaflokka í 20 ár til
þess að gæta hagsmuna sinna. Til
þess að byggja upp samfélag sem
stendur af sér erfiða tíma. Kópa-
vogur hefur verið rekinn á glæfra-
legan hátt og kjörnir fulltrúar
hafa farið ógætilega með skattfé
íbúanna. Bæjarfélagið hefur verið
skuldsett upp fyrir öll mörk og nú
er þannig komið að vaxtabyrðin er
slík að grunnþjónustan er farin að
líða fyrir.
Það er mikilvægt að halda því til
haga að fjárfestingar í landakaup-
um undanfarinna ára hafa verið
langt fram úr öllu hófi og er það í
raun illskiljanlegt hvernig meiri-
hluti sjálfstæðismanna og fram-
sóknarmanna komst að þeirri
niður stöðu að fjárfesta með þeim
hætti sem gert hefur verið. Það
hefur gjarnan verið sagt að sjálf-
stæðismenn geti einungis stjórnað
í uppsveiflu, þegar nóg er af fjár-
magni í umferð eins og var. Sönn-
un þess liggur á borðinu þessa
dagana í Kópavogi, sannleikurinn
er nefnilega sá sjálfstæðismenn
kunna ekkert með fé að fara enda
stendur Kópavogsbær verr að vígi
en nokkru sinni fyrr eftir langa
valdatíð íhaldsins og framsóknar-
manna.
Það er sársaukafullt að taka
þátt í þeim niðurskurði sem fram-
undan er og er það sem eitur í
beinum félagshyggjufólks að neyð-
ast í þær aðgerðir sem framundan
eru til þess að bjarga bæjarfélag-
inu undan þeirri smán að missa
fjárræði yfir til félagsmálaráðu-
neytisins. Reyndar er það engin
nýlunda að það virðist vera verk-
efni félagshyggjufólks að moka
flórinn eftir hægriöflin.
Þó skal hafa það hugfast að
það koma dagar eftir þennan
dag og undir öruggri stjórn
nýja meirihlutans í Kópavogi er
hugsað lengra en til morgundags-
ins. Kópavogur mun rísa upp úr
öskustónni og blómstra á ný. Þá
er hyggilegt að leggja það vel á
minnið til framtíðar að forðast
gylliboðin og sjónhverfingarnar
sem frjálshyggjan býður gjarnan
uppá. Afleiðingarnar eru sam-
félaginu allt of dýrar.
Kópavogur er í
verulegum fjárhagsvanda
Kópavogur
Arnþór
Sigurðsson
fulltrúi í Íþrótta- og
tómstundaráði
Kópavogs
Viðskilnaður Sjálfstæðisflokksins og
Framsóknarflokksins er slíkur að litlu má
muna að bæjarfélagið sé sett í gjörgæslu
félagsmálaráðuneytisins.
OG EIMSKIP FLYTJANDI
KEMUR JÓLAPÖKKUNUM
TIL SKILA
750
Ef þú getur borið pakkann kostar sendingin aðeins
750 krónur. Glimrandi hagstætt fyrir jólapakkana þína.
Upplýsingar um næsta afgreiðslustað á www.flytjandi.is
| www.flytjandi. is | sími 525 7700 |
Hámarksstærð pakka er 0,5 x 0,5 x 0,5 m og hámarksþyngd 45 kg.
Á ekki við kæli- og frystivöru. Verð fyrir heimakstur með jólapakka er 750 kr.
KR.
VIÐ STYÐJUM
MÆÐRASTYRKS-
NEFND!
80 ÁFANGASTAÐIR DAGLEGA UM LAND ALLT